Handknattleiksmaðurinn Dagur Gautason kveður franska liðið Montpellier að þessu tímabili loknu en hann kom þangað á miðjum vetri frá Arendal í Noregi. Dagur staðfesti þetta við netmiðilinn handbolti.is.
Ekkert verður af sameiningu knattspyrnufélaganna Reynis úr Sandgerði og Víðis úr Garði sem fyrirhuguð var í haust. Sameiningin var felld í kosningu hjá báðum félögum, með afgerandi niðurstöðu hjá Reyni en hjá Víði náðist ekki að tveir þriðju væru samþykkir, eins og til þurfti.
Úrúgvæinn Paulo Pezzolano hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska B-deildarfélagsins Watford. Hann er tólfti stjórinn sem stýrir liðinu frá því í september árið 2019.
Ragnheiður Ragnarsdóttir og Thelma Melsteð Björgvinsdóttir hafa framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Hauka. Ragnheiður er þrítug og hefur skorað 41 mark í 27 leikjum Hauka á yfirstandandi Íslandsmóti og Thelma er tvítug og hefur skorað ellefu mörk í fjórtán leikjum, tíu þeirra í úrslitakeppninni.
Handknattleiksmaðurinn ungi Elís Þór Aðalsteinsson hefur samið á ný við ÍBV til ársins 2027. Elís er aðeins 17 ára en skoraði þó 40 mörk í 20 leikjum ÍBV í úrvalsdeildinni í vetur og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.
Kaká, einn af heimsmeisturum
Brasilíu árið 2002 og besti knattspyrnumaður heims árið 2007, er kominn í þjálfarateymi brasilíska karlalandsliðsins. Þar aðstoðar hann Carlo Ancelotti, sem tekur við liðinu 26. maí, en Kaká lék áður undir hans stjórn með AC Milan á Ítalíu.
Indiana Pacers leikur til úrslita í Austurdeild NBA í körfuknattleik eftir sigur á Cleveland Cavaliers á útivelli, 114.105, í fimmta leik liðanna í fyrrinótt. Tyrese Haliburton skoraði 31 stig fyrir Indiana og átti 8 stoðsendingar en Donovan Mitchell skoraði 35 stig fyrir Cleveland og tók 9 fráköst. Cleveland vann Austurdeildina í vetur á meðan Indiana hafnaði í fjórða sæti, fjórtán sigrum neðar, en reyndist sterkari aðilinn þegar mest á reyndi í úrslitakeppninni.