Íslenskir kvikmyndaleikstjórar sem átt hafa kvikmyndir á kvikmyndahátíðinni í Cannes eru á meðal þeirra 380 listamanna sem undirritað hafa opið bréf þess eðlis að ekki megi í Cannes þagga niður í hryllingnum á Gasa. Variety greinir frá en íslensku leikstjórarnir eru Ásdís Thoroddsen, Benedikt Erlingsson, Grímur Hákonarson, Hlynur Pálmason, Óskar Jónasson, Rúnar Rúnarsson, Valdimar Jóhannsson og Þorsteinn Jónsson auk stórstjarna á borð við Mark Ruffalo, Guy Pearce, Ralph Fiennes, Viggo Mortensen og Cynthiu Nixon.
Bréfið hefst á sögu hinnar palestínsku Fötmu Hassouna sem starfaði sjálfstætt sem blaðaljósmyndari. Hassouna lést þegar hún var skotin af ísraelskum hermönnum, aðeins 25 ára að aldri, ásamt tíu ættingjum sínum sem allir voru drepnir í sömu skotárásinni. Þá var bandaríska kvikmyndaakademían einnig gagnrýnd í bréfinu fyrir skort á stuðningi við Hamdan Ballal, einn leikstjóra No Other Land, en aðeins þremur vikum eftir að hann hlaut Óskarsverðlaun varð hann fyrir árás ísraelskra hermanna sem rændu honum. Eftir að hafa verið gagnrýnd fyrir þögn sína baðst akademían opinberlega afsökunar.