Marine Le Pen Það gustar um stjórnmálakonuna frönsku.
Marine Le Pen Það gustar um stjórnmálakonuna frönsku.
Le Pen, leiðtogi frönsku þjóðfylkingarinnar, var dæmd í fjögurra ára fangelsi, þurfti að greiða sekt og var ekki kjörgeng í fimm ár. Flokkur fólksins tók (ólöglega) við fjórfalt hærri upphæð, um 240 milljónum, og hefur eflaust ráðskast með það til eigin þarfa

Le Pen, leiðtogi frönsku þjóðfylkingarinnar, var dæmd í fjögurra ára fangelsi, þurfti að greiða sekt og var ekki kjörgeng í fimm ár. Flokkur fólksins tók (ólöglega) við fjórfalt hærri upphæð, um 240 milljónum, og hefur eflaust ráðskast með það til eigin þarfa. Engar ákúrur, engin eftirköst – hvað er í gangi? Margir lögspekingar láta óátalin þessi vinnubrögð, sem eru auðsýnilega þjófnaður frá þjóðinni!

Fjármálaráðherra – ekki kosinn af þjóðinni – leggur blessun sína yfir þennan stuld. Já, hvílík óhæfa! Á þessi flokkur að heita að berjast fyrir litla manninn?

Svo hefur formaður flokksins ítrekað vaðið á skítugum skóm yfir menn

og málefni.

Hvað gerir hún næst þessi Inga,

þegar mál hennar eru við það að springa,

ei dugir þá að garga eða syngja,

né heldur í eldhúskróki að makka og þinga.

Ragna Garðarsdóttir