Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Saga Garðarsdóttir heldur til Cannes um helgina þar sem hún gengur rauða dregilinn við frumsýningu kvikmyndarinnar The Love That Remains, eða Ástin sem eftir er, eftir Hlyn Pálmason.
Myndin verður sýnd í nýjum hluta aðaldagskrár hátíðarinnar sem telst til stærstu og virtustu kvikmyndaviðburða heims. Þetta markar tímamót – því þetta er fyrsta íslenska kvikmyndin sem fær inngöngu í þennan sýningarflokk. Saga fer þar með aðalhlutverk.
Í morgunþættinum Ísland vaknar ræddi Saga við Bolla Má og Þór Bæring um myndina, undirbúninginn fyrir hátíðina og spennuna og stressið sem fylgir því að fara á svona stóra hátíð.
„Ég verð þar viðstödd frumsýningu myndar sem ég hef alla trú á að sé rosalega falleg og fyndin. En minn helsti hausverkur er í hverju ég á að vera,“ sagði Saga.
Strigapoki ekki í boði
Tilefni fatakvíðans er ný tilmæli frá skipuleggjendum hátíðarinnar. Þar er lögð áhersla á að gestir forðist nekt á rauða dreglinum. „Þá þarf ég bara að vera í einhverjum strigapoka? Ekki í boði, segi ég.“
Saga telur þó að þetta snúist ekki aðeins um klæðaburð og nekt heldur líka um hagnýt atriði.
„Af því að þetta er svo mikil traffík þarna á rauða dreglinum í Cannes. Það sem fylgir þessu, sem er kannski ekki jafn mikið efni í fyrirsagnir, er að þau eru líka að reyna að koma í veg fyrir að fólk komi í risastórum skrítnum kjólum sem tefja umferð og gera það að verkum að fólk á erfitt með að sitja í bíóhúsinu. Þannig að fólk er bara fallandi í yfirlið og það þarf menn til að bera konur milli staða. Ég held að þetta sé svolítið til þess.“
Saga, sem ræddi málið á léttum nótum, sagði þó að óljós mörk gætu auðveldlega valdið óöryggi.
Nekt er opið hugtak
„Mér finnst þetta mjög erfitt þegar þeir eru að tala svona, af því að nekt er svo opið hugtak. Hvað er bert bak eða magi? Hversu hátt má sjást á fótleggi? Þetta verður svolítið loðið og maður verður óöruggur ef þessu er svona slengt framan í mann,“ sagði hún.
Frá vangaveltum um reglur og rauða dregla snerist umræðan að aðalatriðinu, sjálfri myndinni, sem var öll tekin upp á Höfn. Saga lýsir henni sem hlýrri og persónulegri fjölskyldusögu þar sem börn leikstjórans, og hundurinn hans, koma einnig við sögu. „Hann skrifar hana, leikstýrir henni og tekur hana upp,“ sagði Saga.
Í myndinni fylgjast áhorfendur með fjölskyldu á tímamótum þar sem foreldrarnir eru að stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði, í gegnum fjórar árstíðir og óvænt, hjartnæm og oft bráðfyndin augnablik.
Þó að það marki tímamót fyrir íslenska kvikmyndagerð er þetta ekki í fyrsta sinn sem verk eftir Hlyn er á aðaldagskrá hátíðarinnar. Saga lýsir honum einmitt sem „okkar sjóaðasta Cannes-fara“. Hann hefur áður sýnt verk sín á hátíðinni, bæði í Un Certain Regard og Semaine de la Critique, þar á meðal Volaða land, sem komst á stuttlista Óskarsverðlaunanna.
Árið 2019 sýndi Hlynur Hvítan, hvítan dag í Semaine de la Critique, sem er sjálfstæður hluti hátíðarinnar utan aðaldagskrár.
Draumur um líkamsmálningu úti
Vinsælt hlutverk Sögu í grínþáttunum Draumahöllinni, Dr. Body Paint, bar einnig á góma. Þar fer hún með hlutverk læknis sem er nakinn en þakinn litríkri líkamsmálningu í stað fata, birtist skyndilega á vettvangi og bjargar málum. Persónan hefur slegið í gegn.
Saga viðurkenndi kímin að fréttirnar frá Cannes gerðu það að verkum að sá draumur – að mæta sem Dr. Body Paint á hátíðina – væri úr sögunni. Hún deildi einmitt mynd af persónunni og þessari uppgötvun á samfélagsmiðlum. „Sem er auðvitað að vera nakinn. En ég man að þegar ég var að taka upp þessa þætti leið mér ekki eins og ég væri allsber, því ég var svo hulin,“ sagði hún.
Sigríður hannar „dúndursnilld“
Þrátt fyrir allar vangaveltur um fatavalið fyrir hátíðina sagðist Saga þó vera í öruggum höndum, því hún leitaði til fatahönnuðarins Sigríðar Ágústu Finnbogadóttur, sem hefur meðal annars hannað fatnað fyrir tónlistarkonurnar Bríeti og GDRN. „Hún er að hanna fyrir mig einhverja dúndursnilld.“
Þótt Saga fari með aðalhlutverk og íslensk mynd sé í brennidepli heldur hún væntingunum í lágmarki. „Ég held að fáir séu að bíða eftir að Saga Garðars komi, á meðan Scarlett Johansson er tíu metrum frá mér.“
Vonast til að „stela þrumunni“
Bolli benti þó á að það væri vel mögulegt að hún myndi óvænt grípa athygli allra, líkt og Væb-bræðurnir í Eurovision, sem komu eins og þruma úr heiðskíru lofti, heilluðu Evrópu og vöktu verðskuldaða athygli. Kannski spyrði einhver sig: Hver er þessi kona?
„Það væri náttúrulega draumurinn, ef ég myndi stela þrumunni,“ bætti hún við.