Það ríkti mikil gleði meðal Íslendinga á þriðjudagskvöldið þegar bræðurnir í Væb tryggðu sér sæti í úrslitum Eurovision. Þeir deildu strax fagnaðarlátum sínum á samfélagsmiðlum og sögðu meðal annars: „Við trúum þessu ekki! Þetta er klikkað.“…
Það ríkti mikil gleði meðal Íslendinga á þriðjudagskvöldið þegar bræðurnir í Væb tryggðu sér sæti í úrslitum Eurovision.
Þeir deildu strax fagnaðarlátum sínum á samfélagsmiðlum og sögðu meðal annars: „Við trúum þessu ekki! Þetta er klikkað.“ Fylgjendafjöldi þeirra á TikTok hefur rokið upp síðustu daga og fór yfir 65 þúsund tólf tímum eftir sigurinn. Yfir 150 þúsund hafa horft á viðbrögðin á TikTok.
Í kvöld kemur svo í ljós hvaða þjóðir bætast í hópinn og keppa við Væb á lokakvöldinu á laugardag.
Nánar á K100.is.