Árni Bergmann segir menn seint munu temja sér hófsemi: Komi aftur okkar hænur með eggin sín vænu. Komi kötturinn Mosi með kynlegu brosi Komi smáfuglar snjallir til snæðings á palli. Komi enn og aftur einbeittur kraftur til aldraðra tveggja ellimóðra víst beggja

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Árni Bergmann segir menn seint munu temja sér hófsemi:

Komi aftur okkar hænur

með eggin sín vænu.

Komi kötturinn Mosi

með kynlegu brosi

Komi smáfuglar snjallir

til snæðings á palli.

Komi enn og aftur

einbeittur kraftur

til aldraðra tveggja

ellimóðra víst beggja.

Komi sumar og sól

sálarinnar önnur jól.

Eyjólfur Ó. Eyjólfsson fylgdist með Evróvisjón:

Öl á knæpu einn ég drakk

með afar tæpum kjánum

og stjórnlaust æpir allt það pakk

enda Væb á skjánum.

Jón Jens Kristjánsson fékk fregnir af því, að Rússar hermdu kókaínneyslu upp á Macron:

Léttskreið á teinum líður fram

lest og með nokkurn farm er

rennur svo ört með réttum brag

ráðamenn ætla til Kyiv í dag

Macron og Merz og Starmer.

Macron hefir sinn nefklút nær

náði hann sér í kvefið

rauður um nasir við raun og pín

Rússarnir ætla það kókaín

sem að hann saug upp í nefið.

Jón Gissurarson yrkir í sólskini:

Landið grænum klæðist kjól

kitlar golan vanga.

Lít ég úti sumarsól

sigurveginn ganga.

Gunnar J. Straumland fyllist líka bjartsýni í veðursældinni:

Best mér finnst að bæti geð,

bót við andans stíflum,

að væflast um og vera með

vorsins mörgu fíflum.

Þá Hallmundur Guðmundsson:

Hætta er á ég heykist við

og hugarflugið bogni.

Því andinn fór á annað svið,

- í átján gráðu logni.

Helgi Zimsen yrkir um slátt:

Út mér brá með orf og ljá,

enda má nú garðinn slá.

Fella strá og fífil á,

fá mun háa sátu þá.