Arfur Frá sýningunni Heimur í orðum í Eddu.
Arfur Frá sýningunni Heimur í orðum í Eddu.
Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim sunnudaginn 18. maí, en deginum hefur verið fagnað frá árinu 1977. „Þetta er sá dagur ársins þar sem samtakamáttur safna nær hámarki og söfn vekja athygli á starfi sínu, mikilvægi og framlagi til samfélagsins

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim sunnudaginn 18. maí, en deginum hefur verið fagnað frá árinu 1977. „Þetta er sá dagur ársins þar sem samtakamáttur safna nær hámarki og söfn vekja athygli á starfi sínu, mikilvægi og framlagi til samfélagsins. Það eru Íslandsdeild ICOM og FÍSOS (Félag íslenskra safna og safnafólks) sem hafa veg og vanda af deginum hér á landi,“ segir í tilkynningu.

Þema ársins í ár er „Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum“. Í lýsingu á þemanu segir: „Í heimi sem tekur örum breytingum gegna söfn lykilhlutverki sem stofnanir sem efla þollyndi, nýsköpun og inngildingu. Þau eru lifandi vettvangur félagslegrar framþróunar og stuðla jafnframt að sjálfbærni á heimsvísu.“ Fjöldi safna heldur upp á daginn, býður ókeypis inn og stendur fyrir viðburðum í tilefni dagsins. Dagskrána má sjá á samfélagsmiðlum safnadagsins.