Settur Birgir Jónasson fangelsismálastjóri ræddi við Dagmál á mbl.is.
Settur Birgir Jónasson fangelsismálastjóri ræddi við Dagmál á mbl.is.
„Ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir stöðu fangelsismála, að staðan væri svona slæm. Það hefur verið talað um innviðaskuld sem vissulega er til staðar en það er afar mikill þrýstingur á kerfinu hvað varðar pláss,“ segir Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri til eins árs

„Ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir stöðu fangelsismála, að staðan væri svona slæm. Það hefur verið talað um innviðaskuld sem vissulega er til staðar en það er afar mikill þrýstingur á kerfinu hvað varðar pláss,“ segir Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri til eins árs. Hann hefur nú sinnt starfinu í rúma sjö mánuði. „Við erum með 180 rými og nú er staðan sú að um 70 af þeim rýmum fara til notkunar á gæsluvarðhaldi. Til samanburðar voru einungis um 35 rými nýtt undir gæsluvarðhald árið 2022.“

Hann segir að þessi þróun einkennist af auknum fíkniefnainnflutningi, virkara eftirliti á landamærum auk þess sem fólk sem ekki hafi fengið landvistarleyfi sé sett í gæsluvarðhald þar til það yfirgefi landið. Nánar um málið í Dagmálum á mbl.is