Aldís Ásta Heimisdóttir og liðsfélagar hennar í Skara tryggðu sér í gær sænska meistaratitilinn í handknattleik með því að leggja fráfarandi meistara Sävehof að velli, 31:28, í framlengdum fjórða leik liðanna á heimavelli Sävehof í Gautaborg
Aldís Ásta Heimisdóttir og liðsfélagar hennar í Skara tryggðu sér í gær sænska meistaratitilinn í handknattleik með því að leggja fráfarandi meistara Sävehof að velli, 31:28, í framlengdum fjórða leik liðanna á heimavelli Sävehof í Gautaborg. Skara vann einvígið þar með samanlagt 3:1. Aldís Ásta skoraði eitt mark í leiknum í gær en hún gekk til liðs við félagið frá KA/Þór, sumarið 2022. Þetta er í fyrsta sinn sem Skara verður Svíþjóðarmeistari.