Átök Gísli Þorgeir Kristjánsson í baráttunni við Ungverjann Patrik Ligetvári í Ólympíuhöllinni í München á Evrópumótinu í Þýskalandi 2024.
Átök Gísli Þorgeir Kristjánsson í baráttunni við Ungverjann Patrik Ligetvári í Ólympíuhöllinni í München á Evrópumótinu í Þýskalandi 2024. — Ljósmynd/Kristján Orri
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur í F-riðli Evrópumótsins 2026 ásamt Ungverjalandi, Póllandi og Ítalíu en dregið var í riðla í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vínarborg í Austurríki í gær

EM 2026

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur í F-riðli Evrópumótsins 2026 ásamt Ungverjalandi, Póllandi og Ítalíu en dregið var í riðla í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vínarborg í Austurríki í gær.

Riðillinn verður leikinn í Kristianstad í Svíþjóð en Svíar, sem ein þriggja gestaþjóða, fengu að velja eitt landslið í riðil í sínu landi og völdu Ísland í september á síðasta ári. Evrópumótið fer einnig fram í Danmörku og Noregi en Danir völdu Þjóðverja og Noregur valdi Færeyjar.

Íslenska liðið var í öðrum styrkleikaflokki í drættinum, Ungverjaland í fyrsta styrkleikaflokki, Pólland í þeim þriðja og Ítalía í fjórða styrkleikaflokki.

Mótið stendur yfir frá 15. janúar til 1. febrúar en Ísland mætir Ítalíu í fyrsta leik þann 16. janúar. Þetta verður annað Evrópumót Ítalíu en liðið tók þátt á EM 1998, sem fór fram á Ítalíu, þar sem liðið hafnaði í 11. sæti af tólf liðum. Ítalir voru á meðal þátttökuþjóða á HM í Króatíu, Danmörku og Noregi í janúar á þessu ári í fyrsta sinn frá árinu 1997 þar sem liðið hafnaði í 16. sæti.

Ungverjar sterkastir

Annar leikur Íslands verður gegn Ungverjalandi þann 18. janúar en Ungverjar eru þekkt stærð í handboltaheiminum og hafa á að skipa einu best mannaða landsliði heims í dag. Liðið hefur tekið þátt í öllum Evrópumótum EHF frá árinu 2004 og hefur aðeins tvívegis mistekist að tryggja sér sæti í lokakeppninni, árin 2000 og 2002. Ungverjar náðu sínum besta árangri á EM í fyrra í Þýskalandi þegar liðið hafnaði í 5. sæti eftir sigur gegn Slóveníu í leik um fimmta sætið, 23:22, í Lanxess Arena í Köln. Ungverjar höfnuðu í áttunda sæti á síðasta heimsmeistaramóti og þá hafnaði liðið í 10. sæti á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Þetta verður í þriðja sinn á síðustu fjórum stórmótum sem Ísland og Ungverjaland mætast í riðlakeppninni og hafa Ungverjar fagnað sigri í bæði skiptin.

Þriðji leikur Íslands verður gegn Póllandi þann 20. janúar en þeir hafa einnig verið fastagestir í lokakeppni Evrópumótsins frá árinu 2002, að undanskildu árinu 2018 þegar mótið fór fram í Króatíu, þar sem Pólverjum mistókst að tryggja sér sæti í lokakeppninni. Liðið komst ekki áfram í milliriðlakeppnina á síðasta Evrópumóti í Þýskalandi og hafnaði í 16. sæti. Á síðasta heimsmeistaramóti mistókst Pólverjum að komast upp úr riðlinum í fyrsta sinn frá árinu 2017 en liðið hafnaði í 25. sæti á HM í Króatíu, Danmörku og Noregi.

Úrslitin í Herning í Danmörku

Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í milliriðla og takist íslenska liðinu að komast áfram mætir Ísland liðum úr D-riðli og E-riðli. Í D-riðlinum leika Slóvenía, Færeyjar, Svartfjallaland og Sviss en í E-riðli leika heimamenn í Svíþjóð, Króatía, Holland og Georgía.

Milliriðillinn verður leikinn í Malmö dagana 23.-28. janúar en tvö efstu lið riðilsins komast áfram í undanúrslitin, sem verða leikin í Herning í Danmörku. Liðið sem hafnar í þriðja sæti riðilsins leikur um fimmta sætið í Herning en leikir um sæti fara einnig fram í Herning.

Drátturinn í heild:

A-riðill í Herning: Þýskaland, Spánn, Austurríki, Serbía.

B-riðill í Herning: Danmörk, Portúgal, Norður-Makedónía, Rúmenía.

C-riðill í Bærum: Frakkland, Noregur, Tékkland, Úkraína.

D-riðill í Bærum: Slóvenía, Færeyjar, Svartfjallaland, Sviss.

E-riðill í Malmö: Svíþjóð, Króatía, Holland, Georgía.

F-riðill í Kristianstad: Ungverjaland, Ísland, Pólland, Ítalía.

Höf.: Bjarni Helgason