Glen Rogers, betur þekktur sem „landshornamorðinginn“, var tekinn af lífi í gær með þar til gerðum sprautum í Raiford-fangelsi í Flórída-ríki í suðurhluta Bandaríkjanna. Glen Rogers hlaut dauðarefsingu fyrir morð á Tinu Marie Cribbs í nóvember 1995
Glen Rogers, betur þekktur sem „landshornamorðinginn“, var tekinn af lífi í gær með þar til gerðum sprautum í Raiford-fangelsi í Flórída-ríki í suðurhluta Bandaríkjanna. Glen Rogers hlaut dauðarefsingu fyrir morð á Tinu Marie Cribbs í nóvember 1995. Cribbs var 34 ára móðir og var stungin til bana. Lík hennar fannst í baðkari á hóteli. Rogers var einnig dæmdur fyrir annað morð sama ár í Kaliforníu á Söndru Gallagher sem var 33 ára. Hann er grunaður um morð á að minnsta kosti tveimur öðrum konum, annarri í Mississippi og hinni í Louisiana.