„Myndin var svo óeftirminnileg að þegar ég ætlaði inn úr hléinu mundi ég ekki hvaða mynd ég var á.“ Við erum kvikmyndavön og kunnum að beygja hléið. En tré og hné eiga ekki að bæta við sig þágufalls-i: „tréinu“ og…
„Myndin var svo óeftirminnileg að þegar ég ætlaði inn úr hléinu mundi ég ekki hvaða mynd ég var á.“ Við erum kvikmyndavön og kunnum að beygja hléið. En tré og hné eiga ekki að bæta við sig þágufalls-i: „tréinu“ og „hnéinu“? „Ég var stirður í hnénu eftir að hafa dottið niður úr trénu og fór því fram í hléinu til að liðka mig.“