Öflugur Hinn illviðráðanlegi Reynir Þór Stefánsson sækir að marki Vals í sterkum sigri Fram í fyrsta leik úrslitaeinvígisins á Hlíðarenda í gær.
Öflugur Hinn illviðráðanlegi Reynir Þór Stefánsson sækir að marki Vals í sterkum sigri Fram í fyrsta leik úrslitaeinvígisins á Hlíðarenda í gær. — Morgunblaðið/Karítas
Reynir Þór Stefánsson var allt í öllu hjá Fram þegar liðið hafði betur gegn Val í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í handbolta á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Fram, 37:33, en Reynir Þór skoraði tólf mörk og var langmarkahæstur hjá Frömurum

Handboltinn

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Reynir Þór Stefánsson var allt í öllu hjá Fram þegar liðið hafði betur gegn Val í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í handbolta á Hlíðarenda í gær.

Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Fram, 37:33, en Reynir Þór skoraði tólf mörk og var langmarkahæstur hjá Frömurum. Framarar leiða því 1:0 í einvíginu en næsti leikur liðanna fer fram í Framhúsi í Úlfarsárdal á mánudaginn kemur, 19. maí. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Það er óhætt að segja að sóknarleikurinn hafi verið í aðalhlutverki hjá báðum liðum í upphafi leiks en staðan var jöfn, 8:8, eftir tíu mínútna leik. Framarar skoruðu fyrsta mark leiksins en Valsmenn voru með frumkvæðið eftir það.

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson kom Fram yfir í fyrsta sinn síðan í upphafi leiks á 21. mínútu, 13:12. Kjartan Þór Júlíusson kom Frömurum tveimur mörkum yfir mínútu síðar og tveggja marka munur á liðunum í fyrsta sinn í leiknum.

Valsmenn neituðu að gefast upp og Úlfar Páll Monsi Þórðarson jafnaði metin fyrir Val þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik, 17:17. Framarar skoruðu hins vegar þrjú síðustu mörkin í fyrri hálfleik og leiddu með þriggja marka mun í hálfleik, 20:17.

Framarar sigu fram úr

Jafnræði var með liðunum í upphafi síðari hálfleiks og liðin skiptust á að skora líkt og á fyrstu mínútum fyrri hálfleiks. Róbert Aron Hostert minnkaði muninn í tvö mörk, 23:21, þegar sjö mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en þá hrukku Framarar í gang.

Eiður Rafn Valsson kom Fram fjórum mörkum yfir, 25:21, með marki úr vítakasti þegar tæplega tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Liðin skiptust á að skora eftir þetta og alltaf voru Framarar skrefi á undan.

Þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka skoruðu Framarar fimm mörk í röð og staðan allt í einu orðin 32:25, Fram í vil, og munurinn á liðunum sjö mörk. Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Valsmanna tók þá leikhlé í von um að kveikja í sínum mönnum.

Spennandi lokamínútur

Það gekk eftir því Þorvaldur Örn Þorvaldsson minnkaði muninn í eitt mark, 33:32, þegar rúmlega fjórar mínútur voru til leiksloka. Einar Jónsson þjálfari Framara tók þá leikhlé og honum tókst að vekja sína menn. Framarar skoruðu þrjú mörk í röð og fögnuðu þægilegum sigri í leikslok.

Arnór Máni Daðason og Breki Hrafn Árnason vörðu sjö skot hvor í marki Fram og þar af varði Arnór eitt vítakast. Ívar Logi Styrmisson var næstmarkahæstur með fimm mörk og þeir Eiður Rafn Valsson og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoruðu fjögur mörk hvor hjá Fram.

Ísak Gústafsson var markahæstur hjá Val með ellefu mörk, Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði fimm og Þorvaldur Örn Þorvaldsson fjögur. Þá varði Björgvin Páll Gústavsson 12 skot í markinu.

Höf.: Bjarni Helgason