Una Friðriksdóttir ætlar að horfa á Eurovision í ár og finnst keppnin alltaf hafa ákveðinn sjarma. Hún segir orðið „skemmtilegt“ kjarna viðburðinn í heild sinni. Ár eftir ár sé eitthvað við Eurovision-keppnina sem nái henni og alltaf séu einhver skrítin og skondin atriði

Una Friðriksdóttir ætlar að horfa á Eurovision í ár og finnst keppnin alltaf hafa ákveðinn sjarma.

Hún segir orðið „skemmtilegt“ kjarna viðburðinn í heild sinni. Ár eftir ár sé eitthvað við Eurovision-keppnina sem nái henni og alltaf séu einhver skrítin og skondin atriði.

Una bætir við að jafnvel þótt keppnin sé skrítin, þá sé hún alltaf skemmtileg. Þessi óvænti partur af keppninni sé hluti af því sem haldi fólki límdu við skjáinn, hvað sem á dynji. Þegar talið berst að frammistöðu Íslands í keppninni spáir Una því að Ísland endi í 14. sæti.