Viðræður Vladimír Medinskí, formaður rússnesku sendinefndarinnar, og Hakan Fidan utanríkisráðherra Tyrklands ræddust við í gærkvöldi.
Viðræður Vladimír Medinskí, formaður rússnesku sendinefndarinnar, og Hakan Fidan utanríkisráðherra Tyrklands ræddust við í gærkvöldi. — AFP/Tyrkneska utanríkisráðuneytið
Gert er ráð fyrir því að embættismenn frá Úkraínu, Rússlandi og Tyrklandi eigi formlegan fund í Istanbúl í Tyrklandi í dag um hugsanlegt vopnahlé í Úkraínu. Til stóð að fyrsti fundur sendinefnda Úkraínu og Rússlands yrði í gær en óvissa ríkti fram eftir degi um hvort af þessum viðræðum yrði

Guðmundur Sv. Hermannsson

gummi@mbl.is

Gert er ráð fyrir því að embættismenn frá Úkraínu, Rússlandi og Tyrklandi eigi formlegan fund í Istanbúl í Tyrklandi í dag um hugsanlegt vopnahlé í Úkraínu.

Til stóð að fyrsti fundur sendinefnda Úkraínu og Rússlands yrði í gær en óvissa ríkti fram eftir degi um hvort af þessum viðræðum yrði. Sendinefndirnar komu upphaflega hvor til sinnar borgarinnar í Tyrklandi, Istanbúl og Ankara, og ljóst varð á miðvikudagskvöld að Vladímír Pútín forseti Rússlands myndi sitja heima og rússneska sendinefndin yrði skipuð frekar lágt settum embættismönnum.

Volodímír Selenskí forseti Úkraínu sagði hins vegar við blaðamenn í Ankara síðdegis í gær, eftir fund með Recep Tayyip Erdogan forseta Tyrklands, að úkraínska sendinefndin myndi fara frá Ankara til Istanbúl þar sem rússneska sendinefndin beið.

Selenskí sagðist ekki sjálfur ætla að taka þátt í viðræðunum heldur yrðu þær undir forystu Rustems Úmerovs varnarmálaráðherra en sendinefndin hefði umboð til að ræða um vopnahlé.

Selenski sagði að skipan rússnesku nefndarinnar sýndi að Rússum virtist því miður ekki vera alvara þegar þeir segðust vilja semja og beindi orðum sínum til Pútíns: „Ég er hér, við erum reiðubúnir til að taka upp beinar viðræður.“

Vladimír Medinskí, sem fer fyrir rússnesku sendinefndinni, sagði við blaðamenn í Istanbúl að rússnesk stjórnvöld litu á viðræðurnar nú sem framhald af viðræðum sem fóru fram þar í borg skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022. Hann staðhæfði að rússneska nefndin hefði nægilega skýrt umboð og sagði að markmið viðræðnanna væri að koma fyrr eða síðar á varanlegum friði með því að ráðast að rót átakanna.

Afstaða Úkraínu og Rússlands til stríðsloka í Úkraínu er afar ólík. Selenskí vill tafarlaust og skilyrðislaust vopnahlé og í kjölfarið fylgi viðræður um hugsanlegt friðarsamkomulag. Pútín virðist hins vegar telja að Rússar hafi náð yfirhöndinni á vígvellinum og vill því ekki leggja niður vopn fyrr en Úkraína og Vesturlönd hafa gefið verulega eftir.

Höf.: Guðmundur Sv. Hermannsson