Hjalti Kristgeirsson lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 11. maí síðastliðinn, 91 árs að aldri.
Hjalti fæddist 12. ágúst 1933 í Mið-Meðalholtum í Gaulverjabæjarhreppi og var 13. í röð 15 systkina og átti sex alsystkini; Herborg Jónsdóttir, móðir hans, lést úr berklum þegar hann var þriggja ára og Kristgeir Jónsson, faðir hans, lést þremur árum síðar.
Hjalti ólst upp hjá góðu fólki í Klængsseli í Flóa, hjónunum Margréti Tómasdóttur og Einari Jónssyni, gekk í Gaulverjabæjarskóla og Héraðsskólann á Laugarvatni og settist síðan í nýstofnaðan Menntaskóla á Laugarvatni og lauk þaðan stúdentsprófi með láði 1955. Í kjölfarið bauðst honum námsstyrkur til Ungverjalands og þangað hélt hann í febrúar 1956 og lagði í upphafi stund á ungverskunám. Haustið 1956 hóf hann nám í hagfræði við Háskólann í Búdapest, lauk þaðan prófi 1961 og sneri heim. Innrás Rússa í Ungverjaland sama ár og Hjalti hóf þar nám setti mark á líf hans með ýmsum hætti. Því gerði hann ítarlega grein fyrir í þremur viðtölum við Ævar Kjartansson sem flutt voru í Ríkisútvarpinu 2017.
Hjalti vann hjá Hagstofu Íslands 1962-1998 en starfaði jafnframt sem ritstjóri Verkamannsins á Akureyri og blaðamaður á Þjóðviljanum, kenndi námskeið við Háskóla Íslands, stundaði ritstörf og þýddi bækur úr ungversku, var öflugur þátttakandi í samfélagsumræðu og greinandi, ekki síst þegar tók að þiðna og færast í frelsisátt í löndum Austur-Evrópu. Hjalti var mikill náttúruunnandi, leiðsögumaður lengi hjá Ferðafélagi Íslands og ritstjóri Árbókar FÍ frá 1988-2006. Þar mótaði hann árbækurnar í nýjan og nútímalegan búning með fágætlega vönduðum vinnubrögðum.
Sonur Hjalta var Gísli Rúnar Hjaltason (1967-2003), síðast prófessor við háskólann í Waterloo í Kanada. Eiginkona Hjalta er Edda Óskarsdóttir myndlistarmaður og dætur hennar eru Margrét Þóra og Anna Vilborg Gunnarsdætur Dyrset.
Útför Hjalta verður frá Fossvogskirkju 2. júní kl. 13.