Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson þrjú þegar liðið hafði betur gegn Gummersbach, 32:31, á útivelli í Íslendingaslag í 29. umferð þýsku 1. deildarinnar í handbolta í gær
Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson þrjú þegar liðið hafði betur gegn Gummersbach, 32:31, á útivelli í Íslendingaslag í 29. umferð þýsku 1. deildarinnar í handbolta í gær. Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðarsson tvö en Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. Magdeburg er með 43 stig í þriðja sætinu en Gummersbach er í því níunda með 30 stig.