Norður ♠ K96 ♥ K10862 ♦ G7 ♣ D93 Vestur ♠ G108743 ♥ D4 ♦ 10 ♣ 10864 Austur ♠ 2 ♥ Á9753 ♦ 98652 ♣ Á5 Suður ♠ ÁD9 ♥ G ♦ ÁKD43 ♣ KG72 Suður spilar 5♦

Norður

♠ K96

♥ K10862

♦ G7

♣ D93

Vestur

♠ G108743

♥ D4

♦ 10

♣ 10864

Austur

♠ 2

♥ Á9753

♦ 98652

♣ Á5

Suður

♠ ÁD9

♥ G

♦ ÁKD43

♣ KG72

Suður spilar 5♦.

Færeyingar héldu uppi merki vesturhluta Evrópu á smáþjóðaleikunum í Rúmeníu í vikunni. Þeim gekk þó ekki sérstaklega vel og enduðu í 12. sæti af 16 þjóðum enda var spilamennska færeyska liðsins býsna brokkgeng á köflum.

Færeyingar græddu þó á spilinu að ofan gegn Króatíu. Við annað borðið opnaði Króatinn í vestur á 2♠ veikum. Þeir voru passaðir til Danjals Paulis Mohrs í suður sem stökk í 3G og var fljótur að fá 10 slagi eftir að ♠G kom út.

Við hitt borðið opnaði Magni Jøkladal í vestur á multi 2♦ sem sýndi veik spil með annan hvorn hálitinn. Pól Egholm í austur sagði 2♥ í leit að hálitnum og suður doblaði. Magni breytti í 2♠ og nú stökk norður í 4♥ enda bjóst hann við að félagi hans ætti hjarta fyrir doblinu. Pól sagði pass, ánægður með þróun mála, en suður breytti í 5♦. Þann samning var hins vegar ekki hægt að vinna.