Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vænta má að fjallvegir á sunnanverðu landinu verði á þessu vori opnaðir nokkru fyrr en oft áður. Vegagerðin er nú búin að láta ryðja leiðir í Þjórsárdal, það er að Stöng og Háafossi, sem er við hálendisbrúnina. Eins er búið að hefla Kjalveg frá Gullfossi inn á Bláfellsháls. Væntingar standa þá til að halda megi lengra áfram norður á bóginn á næstu dögum.
Oft hefur Kjalvegur, það er milli Biskupstungna og Blöndudals, verið opnaður í kringum 10. júní. Nú verður það hugsanlega eitthvað fyrr, en Grétar Einarsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni á Selfossi, vill þó ekki nefna ákveðna dagsetningu.
„Snjór á hálendinu nú er mjög lítill og nánast auð jörð inn í Kerlingarfjöll. Því verður væntanlega stutt uns þangað verði fært. Þó verður að nefna að víða, til dæmis á Kjalvegi, hefur fylling runnið úr veginum eða þar eru holur. Slíkt er þó nokkuð sem verður bara lagað og við förum í verkin á næstu dögum. Þó verður að taka fram að enn er talsverður snjór á veginum milli afleggjarans í Kerlingarfjöll að Hveravöllum,“ segir Grétar.
Í gær var verið að athuga stöðuna á vegunum inn í Landmannalaugar, það er Dómadal og Hrauneyjaleið. Staðan er góð og vænta má að hægt verði að komast inn í Laugar eftir viku eða svo. Enn er þó snjór víða í í brekkum, giljum og drögum, segir Ágúst Bjartmarsson hjá Vegagerðinni í Vík í Mýrdal. Þá er orðið snjólaust alla leiðina í Veiðivötn og Eldgjá.
Gefið hefur verið út að Sprengisandsleið frá Hrauneyjum í Nýjadal, sem er því sem næst fyrir miðju landi, verði opnuð 21. júní. Veður og aðstæður nú gefa þó tilefni til að opna megi nokkru fyrr.