Jón Snorrason fæddist í Hleiðargarði í Eyjafirði 4. nóvember 1946. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 26. apríl 2025.
Foreldrar hans voru Snorri Hannesson bóndi í Hleiðargarði, f. 1901, d. 1963 og Sigríður Jóna Jóhannsdóttir, f. 1903, d. 1982.
Bræður Jóns eru Jóhannes Hleiðar Snorrason, f. 1928, d. 1986, giftur Helgu Egilsdóttur, f. 1932, d. 2014 og Arnaldur Eyfjörð Snorrason, f. 1942, giftur Sigríði Halldórsdóttur, f. 1945.
8. mars 1969 giftist Jón lífsförunaut sínum Auði Björk Hermannsdóttur, f. 14. júní 1951 á Akureyri. Foreldrar hennar voru Hermann Jónsson, f. 1924, d. 2020 og Líney Sæmundsdóttir, f. 1925, d. 2011.
Börn Jóns og Auðar eru: 1) Líney Björk Jónsdóttir, f. 1969, gift Jóhanni Rúnari Sigurðssyni, f. 1964. Þeirra börn eru: a) Auður Ýr, f. 1989, gift Ólafi Evert Úlfssyni, f. 1989. Þeirra börn eru: Evert Marinó, f. 2015 og Emil Óli, f. 2019. b) Katrín Jóna, f. 1992, kærasti Ísak Andri, f. 2000, dóttir Katrínar er Rakel Mist, f. 2014. 2) Hermann Snorri Jónsson, f. 1971, giftur Hrafnhildi Kristinsdóttur, f. 1975. Þeirra börn eru: a) Katrín Birna, f. 1996, sambýlismaður Birgir, f. 1989, þeirra sonur er Birnir Hrafn, f. 2021. b) Salka, f. 1999, sambýlismaður Vignir, f. 1997, þeirra dóttir er Viktoría Nótt, f. 2024. c) Sölvi, f. 2007.
Jón ólst upp í torfbæ í Hleiðargarði til níu ára aldurs en þá flutti fjölskyldan í nýtt glæsilegt hús í Hleiðargarði. Þegar Jón var 16 ára missti hann föður sinn og í framhaldi af því fluttu þau mæðgin til Akureyrar. Þegar móðir Jóns seldi jörðina að Hleiðargarði var smá land skilið eftir og þeir bræður byggðu sér þar sumarbústað 1978-1980 og nefndu staðinn Bræðraborg. Í Bræðraborg gróðursettu þeir ásamt fjölskyldum sínum mikið af trjám og mikill skógur er kominn þar í dag. Þarna naut Jón sín að dunda sér við gróðurinn, slátt og viðhald á húsinu. Bústaðurinn og landið gaf honum mjög mikið, var hans líf og yndi enda um náttúruparadís að ræða.
Ungur hóf Jón störf hjá Pósti og síma og í framhaldi af því hóf hann nám í Póst- og símaskólanum í Reykjavík. Þar lærði hann símsmíði og starfaði allan sinn starfsaldur þar, þar á meðal var hann yfirverkstjóri í 20 ár eða þar til hann hætti störfum vegna aldurs.
Jón hafði mikinn áhuga á myndlist og þegar hann fór á eftirlaun hóf hann myndlistarnám hjá Erni Inga og útskrifaðist þaðan 28. maí 2011. Hann naut sín við myndlist og hafði einnig mikinn áhuga á golfi auk þess sem þau hjónin ferðuðust erlendis þar sem Gran Kanarí var þeirra staður.
Útför Jóns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 16. maí 2025, og hefst athöfnin kl. 13.
Kveðja til elsku afa míns.
Elsku afi minn.
Seiglan, drifkrafturinn, baráttan og jákvæðni þín er hreint ótrúleg og eitthvað sem ég mun alltaf reyna að tileinka mér.
Elsku afi, góðmennskan og kærleikur þinn skein í gegn og snerti okkur öll. Elsku afi, allar stundirnar okkar og dýrmætu minningarnar er ég svo gríðarlega þakklát fyrir.
Elsku afi, þú varst svo hæfileikaríkur og ég elska að horfa á allar fallegu myndirnar sem þú málaðir.
Elsku afi, allar ógleymanlegu ferðirnar okkar í sveitina, en þú undir þér svo vel þar.
Elsku afi, þið amma eruð og hafið alltaf verið mér svo afar kær.
Elsku afi, bros þitt og hlátur lýstu upp daginn minn.
Elsku afi, ég var ekki tilbúin til þess að kveðja þig.
Elsku afi, ég veit að þú vakir yfir okkur öllum.
Elsku afi, ég mun alltaf elska þig.
Þín
Salka.