Hetja Lamine Yamal fagnar marki sínu gegn Espanyol í gærkvöldi.
Hetja Lamine Yamal fagnar marki sínu gegn Espanyol í gærkvöldi. — AFP/Manaure Quintero
Lamine Yamal reyndist hetja Barcelona þegar liðið tryggði sér spænska meistaratitilinn í annað sinn á þremur árum með 2:0-sigri gegn Espanyol á útivelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Börsungar eru á toppnum með sjö stiga forskot á Real Madríd þegar einungis tvær umferðir eru eftir

Lamine Yamal reyndist hetja Barcelona þegar liðið tryggði sér spænska meistaratitilinn í annað sinn á þremur árum með 2:0-sigri gegn Espanyol á útivelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Börsungar eru á toppnum með sjö stiga forskot á Real Madríd þegar einungis tvær umferðir eru eftir. Yamal kom Barcelona yfir á 53. mínútu áður en hann lagði upp annað mark leiksins fyrir Fermín López á sjöundu mínútu uppgefins uppbótartíma.