Bikarkeppnin
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Vestri gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Breiðabliks að velli, 2:1, í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu á Kópavogsvelli í gærkvöldi.
Vestri, sem hefur átt góðu gengi að fagna í Bestu deildinni á tímabilinu, varð þannig síðasta liðið sem tryggði sér sæti í átta liða úrslitum.
Gunnar Jónas Hauksson kom gestunum af Vestfjörðum í forystu á 25. mínútu þegar hann skoraði af örstuttu færi eftir að Arnór Borg Guðjohnsen hafði gefið fyrir vinstra megin úr vítateignum og Blikum tókst ekki að hreinsa frá.
Snemma í síðari hálfleik jafnaði Tobias Thomsen metin fyrir Breiðablik þegar hann skoraði með skoti úr teignum eftir fyrirgjöf Arons Bjarnasonar frá hægri.
Fjórum mínútum síðar, á 56. mínútu, skoraði Daði Berg Jónsson sigurmark Vestra þegar hann lagði boltann snyrtilega í netið úr vítateignum eftir sendingu Arnórs Borg af hægri kantinum.
Bikarmeistararnir úr leik
Fram gerði sömuleiðs frábæra ferð til Akureyrar og lagði þar ríkjandi bikarmeistara KA að velli, 4:2. Þar með er ljóst að Akureyringar verja ekki bikarinn.
Róbert Hauksson skoraði tvívegis fyrir Fram auk þess sem Kyle McLagan skoraði og Hans Viktor Guðmundsson hjá KA varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Birgir Baldvinsson skoruðu mörk KA.
Hinir sex leikirnir í sextán liða úrslitunum fóru fram á þriðjudag og miðvikudag. Þar komust áfram Afturelding, Valur, ÍBV og Stjarnan úr Bestu deildinni og 1. deildar lið Þórs og Keflavíkur.
Afturelding lagði ÍA 1:0 á Akranesi í fyrrakvöld með marki Arons Jóhannssonar. Valur vann Þrótt R. 2:1 á Hlíðarenda þar sem Patrick Pedersen og Jónatan Ingi Jónsson skoruðu mörk Vals áður en Aron Snær Ingason minnkaði muninn fyrir Þróttara.
Stjarnan slapp með skrekkinn
Stjarnan slapp með skrekkinn og vann 2. deildar lið Kára í Akraneshöllinni í vítaspyrnukeppni eftir að leikur liðanna endaði 2:2. Skagamaðurinn í marki Stjörnunnar, Árni Snær Ólafsson, var bjargvættur Garðbæinga því hann varði tvær spyrnur í vítakeppninni, sem Stjarnan vann 4:1.
ÍBV skellti KR 4:2 á Þróttarvelli þar sem Oliver Heiðarsson skoraði tvö marka Eyjamanna auk þess sem Omar Sowe og Hermann Þór Ragnarsson komust á blað. Atli Sigurjónsson og Guðmundur Andri Tryggvason skoruðu mörk KR-inga.
Þá unnu Keflvíkingar 2. deildar lið Víkings frá Ólafsvík, 5:2, þar sem Muhamed Alghoul skoraði þrennu.
Dregið verður til átta liða úrslitanna í hádeginu í dag, bæði í karla- og kvennaflokki, en þau verða leikin 18. og 19. júní í karlaflokki og 11. og 12. júní í kvennaflokki.