Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna er ekki bjartsýnn á að viðræður milli Rússlands og Úkraínu skili miklum árangri í átt til friðar í Úkraínu. Í gærkvöldi stóð enn til að viðræður milli samningamanna ríkjanna tveggja færu fram í Istanbúl í Tyrklandi í dag.
Stjórnvöld í Tyrklandi sögðu í gærkvöldi að viðræður myndu fara fram.
Rubio tekur þátt í viðræðunum í dag en hann ræddi við fjölmiðla eftir fund utanríkisráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins í suðurhluta Tyrklands í gær.
„Ég held að þessar viðræður þokist ekkert áfram fyrr en Trump og Pútín tala saman beint um þetta málefni,“ sagði hann við fjölmiðla.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað að taka ekki þátt í viðræðunum og Volodimír Selenskí forseti Úkraínu sendi varnarmálaráðherra sinn til Istanbúl. » 13