30 ára Ísabella er Ísfirðingur í húð og hár. Hún er mikið fyrir útivist og var mikið á snjóbrettum fyrir vestan. Eftir grunnskólann fór hún í Menntaskólann á Ísafirði. Þá var farið suður í Háskóla Íslands í stjórnmálafræði, og hún var eitt ár í Stokkhólmsháskóla sem skiptinemi frá HÍ

30 ára Ísabella er Ísfirðingur í húð og hár. Hún er mikið fyrir útivist og var mikið á snjóbrettum fyrir vestan. Eftir grunnskólann fór hún í Menntaskólann á Ísafirði. Þá var farið suður í Háskóla Íslands í stjórnmálafræði, og hún var eitt ár í Stokkhólmsháskóla sem skiptinemi frá HÍ. „Ég varð alveg ástfangin af Svíþjóð og þetta var mjög skemmtileg reynsla.“

Síðan er Ísabella líka jógakennari og hún notaði covid-tímann í fjallamennskunám á Höfn í Hornafirði og lærði að verða leiðsögumaður.

Í dag starfar Ísabella sem samskiptastjóri hjá Festu – miðstöð um sjálfbærni. „Ég byrjaði að vinna þar fyrir tæplega þremur árum, en Festa er einstakur vettvangur tæplega 200 aðildarfélaga sem eru fyrirtæki og stofnanir sem sjá tækifærin í því að vinna að sjálfbærni í rekstri og vilja bæta samfélagið og umhverfið.“

Ísabella er sérstök áhugamanneskja um Hornstrandir og fer helst á hverju ári. „Það er ekkert betra en að jarðtengja sig á Hornströndum og komast í tengsl við sitt innra sjálf frá öllu áreitinu.“ Hún segir að áhuginn hafi hafist í ferðum með foreldrunum, en þau voru mikið að sigla og var oft farið til Hornstranda. „Síðan fór ég í mína fyrstu bakpokaferð þangað þegar ég var 22 ára og síðan hef ég farið næstum hverja einustu verslunarmannahelgi þangað.“

Ísabella á dótturina Sóldísi Fjöru Rafnsdóttur, f. 2021, sem er alltaf kölluð Fjara, en nafngiftin á rætur sínar að rekja til Hornstranda. „Ég hef alltaf verið mikill áhugamaður um refinn á Hornströndum. Hann er fjörudýr og ég var svo heilluð af þessu búsvæði hans og honum sem dýri, sem þarf að sýna ótrúlega þrautseigju til að lifa af. Ég er meira að segja með tattú af refnum á handleggnum,“ segir hún og hlær. „En ég þurfti að sækja um leyfi fyrir nafninu hjá Mannanafnanefnd, en það bara rann í gegn og núna eru tvær Fjörur búnar að bætast í hópinn.“

Eins og áður sagði var Ísabella mikið á snjóbrettum á Ísafirði. „Núna ætla ég að brjóta odd af oflæti mínu og byrja aftur á skíðum, og hætta þessum töffaraskap. Þá er það opinbert og ekki hægt annað en standa við það.“