Útboð Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra ákvað fyrir hönd ríkisins að selja allan hlut þess í Íslandsbanka.
Útboð Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra ákvað fyrir hönd ríkisins að selja allan hlut þess í Íslandsbanka. — Morgunblaðið/Eyþór
Útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka lauk klukkan 17.00 í gær. Fjármála- og efnahagsráðuneytið greindi frá því rétt fyrir lokun að ákveðið hefði verið að selja allan eignarhlut ríkisins í bankanum með því að virkja heimild til magnaukningar í ljósi …

Matthías Johannessen

mj@mbl.is

Útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka lauk klukkan 17.00 í gær. Fjármála- og efnahagsráðuneytið greindi frá því rétt fyrir lokun að ákveðið hefði verið að selja allan eignarhlut ríkisins í bankanum með því að virkja heimild til magnaukningar í ljósi „fordæmalausrar eftirspurnar“, eins og kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins.

Útboðið hófst þriðjudaginn 13. maí og var skipt í þrjár tilboðsbækur, A, B og C. Almenningur gat tekið þátt í tilboðsbók A á föstu verði, 106,56 krónum á hlut, með lágmarksáskrift upp á 100 þúsund krónur og hámark 20 milljónir króna.

Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins voru alls um 850 milljón hlutir seldir, sem jafngildir 45,2% af útgefnu og útistandandi hlutafé Íslandsbanka og því allri eign ríkisins í bankanum. Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins seint í gærkvöldi verða áskriftir einstaklinga ekki skertar. Komi til þess að frekari hlutir séu í boði eftir úthlutun til einstaklinga munu fjárfestar í tilboðsbók B og C fá upplýsingar um úthlutun á miðvikudagsmorgun, 21. maí nk., með tilliti til þeirra úthlutunarreglna er fram koma í lögum nr. 80/2024.

Heildarvirði útboðsins á útboðsgenginu nemur um 90,6 milljörðum króna. Fram kom í tilkynningu að heildareftirspurn útboðsins alls hefði verið um 190 milljarðar króna og því um 100 milljarða umframeftirspurn.

Greiningarfyrirtækið Akkur metur hlutabréf Íslandsbanka á um 145 krónur á hlut, eða um 36% yfir útboðsgenginu í tilboðsbók A. Í síðasta útboði ríkisins í Íslandsbanka árið 2022 var afsláttur gagnrýndur harðlega en ljóst þykir að hann er mun meiri í þessu útboði.

Morgunblaðið leitaði til Jóns Guðna Ómarssonar bankastjóra Íslandsbanka, sem sagði eftir útboðið:

„Við hjá Íslandsbanka erum gríðarlega ánægð og þakklát fyrir þessa miklu og góðu þátttöku í útboðinu. Við höfum lagt mikinn metnað í að kynna bankann vel fyrir almenningi og fjárfestum og það er afar gaman að sjá það skila sér í góðri eftirspurn eftir hlutabréfum í bankanum – sem fer fram úr okkar björtustu vonum. Við hlökkum til að vera hreyfiafl til góðra verka fyrir bæði nýja fjárfesta og viðskiptavini bankans. Bankinn stendur á spennandi tímamótum og mikið af tækifærum fram undan.“

Höf.: Matthías Johannessen