Brynhildur Glúmsdóttir
brynhildur@mbl.is
Samkvæmt mælingum Verðlagseftirlits ASÍ varð 0,6% hækkun á dagvöru milli mars og apríl. Þriðja mánuðinn í röð er hækkunin meiri en hálft prósent, sem er meðalhækkun á matvöru undanfarið ár. Það lítur þó út fyrir að hækkanirnar séu að dragast saman.
Verð á íslenskum vörum hækkaði um 0,9% milli janúar og febrúar, 0,8% milli febrúar og mars og eins og áður segir var hún 0,6% milli mars og apríl.
Frá áramótum hefur verðlag innlendra vörumerkja hækkað mun hraðar en erlendra vörumerkja og var sá munur mestur í janúar og febrúar.
Mjólkurverð hækkar
Mjólkurverð mun nú hækka vegna ákvörðunar verðlagsnefndar búvara. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ, segir við Morgunblaðið að það muni sennilega ýta á hækkunina sem gæti haldið sig við hálfa prósentið. Erfitt sé þó að fullyrða það þar sem enn er mikið eftir af mánuðinum.
„Jákvæðu fréttirnar eru þær að það er ekki jafn mikið að hækka í byrjun mánaðar eins og undanfarna mánuði,“ segir Benjamín.
Ef skoðaðar eru tölurnar frá stærstu búðunum, svo sem Krónunni og Bónus, er greinilegt að hækkunartakturinn var mestur í febrúar og aðeins í mars og margt bendir til þess að hann sé að róast. Í apríl voru það meira Nettó og Kjörbúðin sem héldu uppi einhverjum hækkunum.
Benjamín nefnir einnig að fyrirtæki hafi sagt í lok síðasta árs að þau myndu hækka gjaldskrár sínar.
„Það kom kannski smá á óvart í janúar að ekki skyldi sjást merki um það en það kom þá bara seinna, í febrúar og mars. Það er þá aðeins að dreifast yfir byrjun ársins.“
Sumargrillið verður dýrara, þar sem nautakjöt hefur hækkað í verði á þessu ári. Einnig verður dýrara að bjóða upp á bernaise-sósu með steikinni, þar sem Stjörnuegg hafa hækkað um 8,4% í maí.
Vöruhækkanir
Það verður dýrt að grilla í sumar.
Nautakjöt hefur hækkað hratt í verði á þessu ári.
Stjörnuegg hafa hækkað um 8,4% í maí.
Verð á Nesbú-eggjum hefur hækkað hægar, en uppsöfnuð árshækkun er 6,5% að meðaltali í fjórum stærstu verslanakeðjunum, Bónus, Hagkaupum, Krónunni og Nettó.