Í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks verður boðið til tónleika með gleðisveitinni Ukulellum á morgun, laugardag, kl. 15 í Landakoti á Árbæjarsafni. „Ukulellur eru skemmtileg og dásamlega djörf hljómsveit samansett af nokkrum miðaldra hinsegin konum
Í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks verður boðið til tónleika með gleðisveitinni Ukulellum á morgun, laugardag, kl. 15 í Landakoti á Árbæjarsafni. „Ukulellur eru skemmtileg og dásamlega djörf hljómsveit samansett af nokkrum miðaldra hinsegin konum. Þær skemmta sér og öðrum með því að spila og syngja lög sem fjalla um líf og reynslu hinsegin fólks – oft með kaldhæðni og húmor sem hristir upp í ríkjandi viðmiðum og boxum samfélagsins,“ segir í viðburðarkynningu. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.