1994 Björgvin Harri, Björn og Valgeir í sveitaballagírnum.
1994 Björgvin Harri, Björn og Valgeir í sveitaballagírnum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hljómsveitin Austurland að Glettingi frá Egilsstöðum hefur heldur betur lifnað við eftir að hafa verið með á tónleikunum Austfirðingagiggi, sem Guðmundur Rafnkell Gíslason, söngvari í SúEllen, stóð fyrir í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir rúmu ári

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Hljómsveitin Austurland að Glettingi frá Egilsstöðum hefur heldur betur lifnað við eftir að hafa verið með á tónleikunum Austfirðingagiggi, sem Guðmundur Rafnkell Gíslason, söngvari í SúEllen, stóð fyrir í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir rúmu ári. Tónlistarmennirnir í bandinu ákváðu að dusta rykið af gömlu, frumsömdu efni, fóru í stúdíó til að taka upp lög, sendu það fyrsta frá sér fyrir skömmu, annað er væntanlegt á streymisveitum 23. maí og stefnan er að gefa út tvö lög til viðbótar á árinu.

Tveir tónlistarmenn frá Egilsstöðum, Björgvin Harri Bjarnason, söngvari og gítarleikari, og Björn Hallgrímsson, bassaleikari og aðalsöngvari, stofnuðu bandið árið 1993 með Valgeiri Skúlasyni, trommuleikara og söngvara frá Borgarfirði eystri. „Við höfðum verið í tveimur hljómsveitum og sameinuðum krafta okkar,“ segir Björgvin Harri. Bandið lét til sín taka á sveitaböllum til 1996 og naut vinsælda, ekki síst í heimabyggð.

Þekktasta lagið

Hljómsveitin átti lagið „Ég vil aðeins þig“ á safnplötunni Landvættarokki 1993. Árið eftir sendu piltarnir frá sér lagið „Stúlkan við ströndina“ á safnplötunni Sándkurli. Sama ár var lag þeirra „Alein tvö“ spilað reglulega í útvarpi og sjónvarpi en næsta lag kom ekki út fyrr en 31 ári síðar. „„Stúlkan við ströndina“ er þekktasta lag okkar og „Alein tvö“ fékk töluvert mikla spilun, þó að það hafi ekki komið út á diski fyrr en 1997,“ rifjar Björgvin Harri upp. Þeir hafi gert myndbönd á sínum tíma við bæði lögin og hugmyndin sé að gefa þau út á streymisveitum.

Björgvin Harri segir að tónlistin hafi átt hug þeirra allan 1993 til 1996 en þá hafi alvara lífsins tekið við, frekara nám, konur og barneignir. „Við spiluðum á böllum flestar helgar í þrjú ár, oft bæði á föstudags- og laugardagskvöldum, en tónlistin vék síðan fyrir öðru. Vinskapurinn hélt samt áfram og við lékum saman annað slagið en tókum ekkert upp fyrr en í fyrrasumar eftir að Austfirðingagiggið hafði kveikt í okkur.“

Fyrir um áratug fóru þremenningarnir saman á tónleika hjá U2 í Hollandi. Í kjölfarið útbjuggu þeir sérstakt prógramm til heiðurs U2 og fluttu það nokkrum sinnum. „Það kom okkur á sporið á ný, við skemmtum okkur vel og Austfirðingagiggið gerði síðan útslagið um framhaldið,“ segir Björgvin Harri.

Þegar þeir stofnuðu bandið veltu þeir því eðlilega fyrir sér hvað það ætti að heita. „Af hverju ekki Austurland að Glettingi,“ spurði Björgvin Harri og þar við sat. Hann bendir á að allir landsmenn hafi þekkt nafnið úr veðurfréttum í útvarpi og sjónvarpi og auk þess væru þeir af svæðinu sem veðurfræðingarnir fjölluðu reglulega um.

Lagið „Náttúran“ eftir Björgvin Harra kom nýlega út með hann sem aðalsöngvara og er fyrst laga þeirra til að rata inn á streymisveitur, en textinn er eftir Hörð Guðmundsson. Gestur Pálsson spilar á saxófón og Haraldur V. Sveinbjörnsson leikur á orgel auk þess sem hann stjórnaði upptökum í upptökuveri sínu, Red Studios. Lagið „Springa“ kemur út á næstunni og þá tekur Björn við af Björgvini Harra sem aðalsöngvari en sá síðarnefndi og Valgeir syngja bakraddir.

Höf.: Steinþór Guðbjartsson