Vinnuvikan á Íslandi hefur styst umtalsvert á síðustu árum og er nú að jafnaði svipuð og meðalvinnuvika í löndum Evrópusambandsins samkvæmt tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Á síðasta ári var vinnuvikan á Íslandi að meðaltali 36,3…

Ómar Friðriksson

omfr@mbl.is

Vinnuvikan á Íslandi hefur styst umtalsvert á síðustu árum og er nú að jafnaði svipuð og meðalvinnuvika í löndum Evrópusambandsins samkvæmt tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Á síðasta ári var vinnuvikan á Íslandi að meðaltali 36,3 heildarvinnustundir en á sama tíma var meðalvinnuvikan í löndum ESB 36 stundir.

Unnið lengur í Portúgal

Umtalsverður munur er þó á vinnutíma í Evrópulöndum samkvæmt tölum Eurostat. Í flestum löndum Vestur-Evrópu var vinnuvikan nokkru styttri en hér á landi. Hún var 33,7 stundir í Noregi, 33,9 stundir í Danmörku, 34,9 stundir í Finnlandi og 35,7 stundir á viku að meðaltali í Svíþjóð.

Vinnuvikan var svipuð og á Íslandi á Spáni (36,4), á Ítalíu (36,1) og öllu lengri en hér á landi í Portúgal (37,5).

Veruleg stytting á tíu árum

Undir lok síðasta áratugar var vinnuvikan á Íslandi til muna lengri en að jafnaði í Evrópu, eða um tveimur stundum lengri en að meðaltali í löndum ESB. Hún var t.d. 39,4 stundir á Íslandi 2019.

Ef litið er lengra aftur í tímann var munurinn enn meiri. Árið 2015 var vinnuvikan á Íslandi að jafnaði 40,1 stund en á því sama ári var meðalvinnuvika í löndum ESB 36,9 stundir samkvæmt tölum Eurostat.

Í fyrra mældist vinnuvika lengst í Grikklandi (39,8), Búlgaríu (39) og Póllandi (38,9).

Höf.: Ómar Friðriksson