— AFP/Alexander Nemenov
Eftirlíking lágmyndar af sovéska einræðisherranum Jósef Stalín hefur verið sett upp í Taganskaja-lestarstöðinni í Moskvu. Myndin sýnir einræðisherrann í hermannabúningi, umkringdan börnum og verkamönnum sem horfa á hann og teygja sig í áttina að honum

Eftirlíking lágmyndar af sovéska einræðisherranum Jósef Stalín hefur verið sett upp í Taganskaja-lestarstöðinni í Moskvu.

Myndin sýnir einræðisherrann í hermannabúningi, umkringdan börnum og verkamönnum sem horfa á hann og teygja sig í áttina að honum.

Frumgerðin var eyðilögð á sjöunda áratugnum við hvítþvott stalínisma, undir stjórn arftaka Stalíns, Nikita Khrúsjovs.

Nokkrar minni myndir og styttur hafa verið reistar víðsvegar um Rússland á undanförnum árum en þá aðallega á einkalóðum og í smærri bæjum.

Ekki hefur verið mikið um stórar myndir af Stalín í hjarta höfuðborgarinnar, en rússnesk stjórnvöld vinna að því að setja hann á stall á ný. Fyrir ofan Stalín má sjá mynd af Vladímír Lenín.