„Eitt vinælasta og stórbrotnasta tónverk tónbókmenntanna Carmina Burana eftir Carl Orff verður flutt í Norðurljósum Hörpu föstudaginn 16. maí kl. 20,“ segir í viðburðarkynningu á tónleikum kvöldsins. Stjórnandi flutningsins er Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri. Hann kemur þar fram með kórana sína Söngfjelagið og Kór Akraneskirkju ásamt einsöngvurunum Herdísi Önnu Jónasdóttur sópran, Benedikt Kristjánssyni tenór og Hrólfi Sæmundssyni baritón.
Einnig kemur fram nýstofnaður Barnakór Söngfjelagsins og danshópur undir stjórn Ásrúnar Magnúsdóttur. Listræn ráðgjöf er í höndum Bjarna Thors Kristinssonar. Hljóðfæraleik annast píanóleikararnir Helga Bryndís Magnúsdóttir og Liam Kaplan ásamt slagverkssveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Franks Aarnink. „Carmina Burana er eitt mest flutta tónverk tónbókmenntanna. Verkið er fjörugt og fyndið, með fjörugum rytmum og húmorískum textum. Á tónleikunum verður sú sérstaða að hluti verksins er fluttur í fyrsta sinn á Íslandi með nýjum íslenskum textum Hjörleifs Hjartarsonar. Fjöldi flytjenda í báðum kórum er um 120 manns auk 20 manna barnakórs.“ Miðar fást á tix.is.