Diljá Ámundadóttir Zoega
Diljá Ámundadóttir Zoega
Diljá Ámundadóttir Zoega tók sæti á Alþingi á miðvikudag, en hún er varamaður Jóns Gnarrs fyrir Viðreisn. Þingseta hefur ekki áhrif á setu Diljár í stjórn Ríkisútvarpsins ohf., þrátt fyrir að lög kveði á um að kjörnir fulltrúar til Alþingis og sveitarstjórna megi ekki sitja þar

Diljá Ámundadóttir Zoega tók sæti á Alþingi á miðvikudag, en hún er varamaður Jóns Gnarrs fyrir Viðreisn.

Þingseta hefur ekki áhrif á setu Diljár í stjórn Ríkisútvarpsins ohf., þrátt fyrir að lög kveði á um að kjörnir fulltrúar til Alþingis og sveitarstjórna megi ekki sitja þar. Ákvæðið tekur ekki til varamanna, eins og reyndi á hjá Merði Árnasyni á sínum tíma. Með Diljá í stjórninni situr einnig Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Flokks fólksins, en hann er ekki kjörinn fulltrúi.