Knattspyrnumaðurinn Viktor Örlygur Andrason hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Víking úr Reykjavík sem gildir út árið 2028. Viktor, sem er 25 ára gamall, lék sína fyrstu leiki í efstu deild fyrir Víking sumarið 2016. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu árin 2021 og 2023 og bikarmeistari árin 2019, 2021, 2022 og 2023.
Englandsmeistarar Liverpool hyggjast virkja kaupákvæði í samningi hollenska knattspyrnumannsins Jeremies Frimpongs, sem leikur með Bayer Leverkusen. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Liverpool muni virkja ákvæði upp á 29,5 milljónir punda í samningi Frimpongs. Honum er ætlað að fylla skarðið sem Trent Alexander-Arnold skilur eftir sig en hann er á förum til Real Madrid.
Patrekur Jóhannesson, handknattleiksþjálfari og fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður, hefur verið ráðinn til starfa frá og með 1. ágúst á svæðisstöð höfuðborgarsvæðisins, sem er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ. Hann mun vinna sem svæðisfulltrúi við hlið Hansínu Þóru Gunnarsdóttur sem gegnir því starfi fyrir.
Kylfingurinn efnilegi Gunnlaugur Árni Sveinsson hafnaði í fjórða sæti á svæðismóti bandarísku háskólanna sem lauk í Virginíu í gær. Hann lék hringina þrjá á 72, 68 og 66 höggum, samtals fjórum höggum undir pari vallarins og var aðeins einu höggi frá öðru sætinu. Sigurvegarinn, Jackson Van Paris frá Vanderbilt-háskólanum, vann mótið á átta höggum undir pari.
Sænski knattspyrnumaðurinn Dejan Kulusevski leikur ekki á ný með Tottenham fyrr en í haust eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné. Hann missir því af úrslitaleik Evrópudeildarinnar þar sem Tottenham mætir Manchester United þann 21. maí í Bilbao á Spáni.
Jamie Vardy mun spila sinn síðasta leik fyrir enska knattspyrnufélagið Leicester City á sunnudaginn, þrátt fyrir að liðið eigi þá einn leik eftir í ensku úrvalsdeildinni. Leicester mætir Ipswich á heimavelli í næstsíðustu umferðinni og verður það 500. leikur Vardys fyrir Leicester. Hann hefur gert samkomulag við félagið um að það verði kveðjuleikurinn á þrettán ára ferli hans í Leicester.