Ítalskur prestur, sem lögreglan grunar um að hafa haft barnaklám í fórum sínum, er í stofufangelsi.
Lögreglan fann um 1.500 ljósmyndir og myndbönd af barnaklámi í síma hans.
Klerkurinn þjónaði sem sóknarprestur í bænum Castelcovati, vestur af Brescia. Hann var handtekinn í síðustu viku og verður ekki nafngreindur á meðan lögreglurannsókn stendur yfir.
„Börn úr sókninni blandast ekki í málið og ekkert óviðeigandi athæfi hefur átt sér stað af hans hálfu gagnvart fólkinu sem honum var treyst fyrir í sálgæslu,“ sagði talsmaður lögreglunnar.
Hann bætti við að „ekki væri hægt að vanmeta glæp sem varðar börn, umbera eða láta honum órefsað, sérstaklega ef prestar eiga í hlut“.