Stefanía Reynis hefur fylgst með Eurovision í gegnum tíðina. Hún tengir viðburðinn við ákveðna árstíðarbundna stemningu. Eurovision sé merki um að vorið sé komið og því fylgir tilhlökkun og eitthvað sem brýtur upp hversdagsleikann

Stefanía Reynis hefur fylgst með Eurovision í gegnum tíðina. Hún tengir viðburðinn við ákveðna árstíðarbundna stemningu.

Eurovision sé merki um að vorið sé komið og því fylgir tilhlökkun og eitthvað sem brýtur upp hversdagsleikann.

Hún lýsir keppninni með einu orði: gleði. Þar sameinast tónlist ásamt mismunandi menningu og oft dálítið furðuleg en heillandi sviðsframkoma í einstaka upplifun. Að hennar mati hefur keppnin í ár verið sérstaklega skemmtileg. „Flestir eru að vinna með frekar skrítin atriði, sem er skemmtilegt fyrir áhorfendur,“ segir Stefanía.

Þegar kemur að frammistöðu Íslands í keppninni spáir Stefanía því að við lendum í sextánda sæti annað kvöld.