Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbúl og Miami.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur flugáætlun til Nashville verið framlengd inn í janúar og flugtímabilið til Hamborgar verið framlengt út október. Þá verður tíðni aukin til Alicante, Barcelona og Brussel.
Flogið verður til Malaga einu sinni til tvisvar í viku frá 6. september til 30. maí og er flugtími fjórar klukkustundir og 45 mínútur, segir í tilkynningu Icelandair.
Flogið verður til Edinborgar þrisvar til fjórum sinnum í viku frá 12. september nk. til 12. apríl 2026 og er flugtími tvær og hálf klukkustund.
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir m.a. í tilkynningu félagsins að það sé vel við hæfi að bæta Edinborg við þar sem 80 ár séu liðin frá fyrsta flugi Icelandair til Skotlands, sem jafnframt var fyrsta millilandaflug íslensks flugfélags.