„Já, ég horfi á Eurovision, það kemur fyrir,“ segir Magnús Ottó Friðriksson og brosir er blaðamaður ber upp spurninguna.
Hann segist ekki alltaf spenntur fyrir Eurovision, en í ár ætlar hann að fylgjast vel með keppninni.
Magnúst kveðst ekki fylgjast með öllum undankeppnum og öllu ferlinu. Þegar komi að stóra kvöldinu, þá hins vegar sitji hann oft límdur við skjáinn. Spurður hvernig hann myndi lýsa Eurovision í einu orði er Magnús Ottó fljótur til svars: „Stuð“.
Honum finnst VÆB-bræður hafa staðið sig vel, atriðið hafi verið gott sem og skipulagið í heild.
Hann telur að keppnin hafi verið fjölbreytt og það sé alltaf gaman að sjá fulltrúa landanna flytja atriðin sín á skapandi hátt.
„Ég held að við endum í 14. sæti,“ segir Magnús Ottó og virðist sáttur við þá niðurstöðu.
Magnús Ottó er einn af þeim sem kunna að meta Eurovision enda áhugaverður menningarviðburður sem sameinar fólk um alla Evrópu og langt út fyrir hana líka.