Eftir nokkurt stapp var fundi í atvinnuveganefnd Alþingis nú í morgun frestað ögn, svo nefndarmenn ættu færi á því að sækja morgunfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga með KPMG á Nordica, þar sem greining á áhrifum frumvarps um hækkun veiðigjalda á sjávarbyggðir verður kynnt
Eftir nokkurt stapp var fundi í atvinnuveganefnd Alþingis nú í morgun frestað ögn, svo nefndarmenn ættu færi á því að sækja morgunfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga með KPMG á Nordica, þar sem greining á áhrifum frumvarps um hækkun veiðigjalda á sjávarbyggðir verður kynnt.
Veiðigjaldafrumvarpi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra var í lok 1. umræðu á Alþingi vísað til atvinnuveganefndar. Sigurjón Þórðarson, formaður nefndarinnar fyrir Flokk fólksins, mun í fyrstu ekki hafa viljað færa fundartímann, en lét tilleiðast fyrir þrábeiðni nefndarmanna.