Landsliðið
Víðir Sigurðsson
Bjarni Helgason
Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir er komin í hópinn á ný fyrir leikina gegn Norðmönnum og Frökkum í Þjóðadeildinni í fótbolta og Agla María Albertsdóttir snýr aftur í hópinn eftir átján mánaða fjarveru.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær 23 manna hóp fyrir leikina tvo en spilað er gegn Norðmönnum í Þrándheimi 30. maí og gegn Frökkum á Laugardalsvellinum 3. júní, en ef allt fer samkvæmt áætlun verður það vígsluleikur þjóðarleikvangsins í núverandi mynd.
Miðað við Laugardalsvöllinn
„Öll okkar plön miðast að því að leikurinn gegn Frökkum fari fram á Laugardalsvelli en við erum með velli til vara ef svo ólíklega vildi til að Laugardalsvöllur verði ekki orðinn leikfær,“ sagði Þorsteinn við Morgunblaðið í gær, en íslenska liðið lék heimaleiki sína í apríl gegn Noregi og Sviss á Þróttarvellinum í Laugardal.
Glódís var ekki með gegn Noregi og Sviss og hefur spilað takmarkað undanfarnar vikur með Bayern München vegna beinmars í hné.
„Við þurfum að sjá hvernig hún verður eftir Noregsleikinn en eins og staðan er í dag þá er ég að velja hana til þess að spila báða leikina, hvort af því verður þarf svo bara að koma í ljós,“ sagði Þorsteinn.
Gott að fá Öglu Maríu aftur
Hann kvaðst fagna því að fá Öglu Maríu aftur í hópinn en hún hefur ekki gefið kost á sér í nokkurn tíma og spilaði síðast með landsliðinu í desember 2023.
„Það er mjög gott að fá Öglu Maríu aftur í hópinn. Hún gefur okkur góða breidd fram á við og sóknarmöguleika sem hjálpa okkur. Við áttum gott spjall og það voru og hafa aldrei verið nein vandamál okkar á milli. Þetta snerist alfarið um hennar löngun þegar kemur að fótboltanum,“ sagði Þorsteinn en Glódís og Agla María koma í stað Elísu Viðarsdóttur og Andreu Ránar Hauksdóttur.
Ísland er í harðri baráttu við Noreg og Sviss um annað og þriðja sæti riðilsins í A-deild Þjóðadeildarinnar en Frakkar hafa þegar unnið riðilinn með 12 stig. Noregur er með 4 stig, Ísland 3 og Sviss 2.
Norska liðið myndi því tryggja sér annað sætið og áframhaldandi sæti í A-deild með sigri í Þrándheimi, svo framarlega sem Sviss ynni ekki Frakkland á sama tíma.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Inter
Telma Ívarsdóttir, Breiðabliki
Fanney Inga Birkisdóttir, Häcken
Varnarmenn:
Glódís Perla Viggósdóttir, Bayern
Ingibjörg Sigurðardóttir, Bröndby
Guðrún Arnardóttir, Rosengård
Guðný Árnadóttir, Kristianstad
Áslaug Munda Gunnlaugsd., Breið.
Sædís Rún Heiðarsdóttir, Vålerenga
Natasha Anasi, Val
Miðjumenn:
Dagný Brynjarsdóttir, West Ham
Alexandra Jóhannsd., Kristianstad
Karólína L. Vilhjálmsd., Leverkusen
Hildur Antonsdóttir, Madrid CFF
Berglind Rós Ágústsdóttir, Val
Hafrún Rakel Halldórsd., Bröndby
Katla Tryggvadóttir, Kristianstad
Sóknarmenn:
Agla María Albertsd., Breiðabliki
Sandra María Jessen, Þór/KA
Sveindís Jane Jónsdóttir, Wolfsburg
Hlín Eiríksdóttir, Leicester
Amanda Andradóttir, Twente
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Leipzig