„Ég horfði allavega á íslenska atriðið,“ segir Eyþór Arnalds. Hann segist þó ekki hafa horft á alla undanúrslitakeppnina á þriðjudaginn.
Aðspurður sagði hann VÆB-bræður hafa staðið sig með prýði.
„Þetta er mikið partí og sameinar fólk fyrir framan skjáinn,“ segir Eyþór þegar hann er beðinn að lýsa keppninni.
„Íslenska atriðið er skemmtilegt, þeir eru einlægir og flottir strákar,“ bætir hann við.
Aðspurður í hvaða sæti Ísland muni lenda segist Eyþór sannfærður um að íslensku strákunum muni takast vel upp og gera þjóðina stolta.
„Þeir koma ekki heim með keppnina en munu standa sig vel,“ segir Eyþór að lokum.