KIMI tríó, sem skipa þau Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona, Katerina Anagnostidou slagverksleikari og Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari verða með tónleika, sem bera yfirskriftina „Vistarverur“, í Salnum á morgun, sunnudaginn 18. maí, kl. 13. Segir í tilkynningu að tónleikarnir séu hluti af Tíbrártónleikaröðinni og að áður en þeir hefjist verði boðið upp á tónleikaspjall í fordyri Salarins um efnisskrá tónleikanna. Hópurinn „frumflytur tvö áhrifarík verk eftir Þuríði Jónsdóttur og Kolbein Bjarnason sem leiða áhorfendur frá Róm til forna, gegnum fangabúðir Sovétríkjanna fram á stríðsvelli samtímans“.