Suðurbugt Ruslsugan á fullu. Ekki veitir af því rusl, olíubrák og fljótandi grútur safnast fyrir í höfninni.
Suðurbugt Ruslsugan á fullu. Ekki veitir af því rusl, olíubrák og fljótandi grútur safnast fyrir í höfninni. — Mynd/Faxaflóahafnir
Faxaflóahafnir hafa ákveðið til að nýta sér nútímatækni til að aðstoða við að halda sjónum hreinum í höfnunum með því að fjárfesta í franskri DPOL fljótandi „ruslsugu.“ Hún hefur undanfarið verið að störfum í Suðurbugtinni í Gömlu höfninni

Faxaflóahafnir hafa ákveðið til að nýta sér nútímatækni til að aðstoða við að halda sjónum hreinum í höfnunum með því að fjárfesta í franskri DPOL fljótandi „ruslsugu.“

Hún hefur undanfarið verið að störfum í Suðurbugtinni í Gömlu höfninni.

Þetta er fljótandi vatnsdæla sem myndar sterkan yfirborðsstraum sem sýgur til sín rusl, olíubrák og fljótandi grút, sem svo safnast í áfesta netapoka og ísogspylsur. Tækið sjálft vegur 35 kíló og gengur fyrir 220V rafmagni þannig að hægt er koma því auðveldlega fyrir á hvaða hafnarsvæði sem er með einföldum hætti, að því fram kemur á heimasíðu Faxaflóahafna.

„Þar getur hreinsitækið staðið vaktina alla daga ársins allan sólarhringinn og haldið sjónum hreinum,“ segir þar.

Haft er eftir Gyðu Mjöll Ingólfsdóttur umhverfis- og gæðastjóri Faxaflóahafna að stöðugt sé verið að leita leiða til að halda höfninni hreinni. Ákveðin svæði séu þannig úr garði gerð að rusl og olía safnast frekar fyrir.

„Með þessum nýja búnaði erum við að prófa okkur áfram með lausnir til að hreinsa þessi svæði,“ segir Gyða Mjöll.

Hún segir að markmiðið sé að meta virkni búnaðarins og ákveða hvort rétt sé að nýta hann á fleiri svæðum í framtíðinni.

Í Suðurbugtinni í Gömlu höfninni eru mörg veitingahús og blómlegt mannlíf. „Við viljum tryggja að hreint og snyrtilegt hafnarsvæði sé hluti af upplifun þeirra sem heimsækja svæðið,“ segir Gyða Mjöll.

sisi@mbl.is