Ofurhetjumús Rakel Ýr Stefánsdóttir í músarhlutverki sínu í sýningunni.
Ofurhetjumús Rakel Ýr Stefánsdóttir í músarhlutverki sínu í sýningunni.
Ofurhetjumúsin verður sýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins á morgun, sunnudaginn 18. mars, klukkan 13. Segir í tilkynningu að hingað til hafi sýningin verið sýnd fyrir elstu árganga leikskóla sem heimsæki leikhúsið en nú sé hins vegar um almenna sýningu að ræða

Ofurhetjumúsin verður sýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins á morgun, sunnudaginn 18. mars, klukkan 13. Segir í tilkynningu að hingað til hafi sýningin verið sýnd fyrir elstu árganga leikskóla sem heimsæki leikhúsið en nú sé hins vegar um almenna sýningu að ræða. „Ofurhetjumúsin er falleg og skemmtileg sýning ætluð yngstu áhorfendum og tilvalin fyrir börn sem eru að heimsækja leikhúsið í fyrsta sinn. Þar fá þau að upplifa spennandi ævintýri með lifandi tónlist sem mörg þeirra kannast við og það má syngja með!“ Segir einnig að hægt sé að nálgast tónlistina og texta á heimasíðu Borgarleikhússins til að undirbúa heimsóknina og hér sé á ferðinni saga um enga venjulega mús því ofurhetjumúsin ferðist um undraheima leikhússins í leit að hugrekki sínu. Höfundur og leikstjóri Ofurhetjumúsarinnar er Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem leikstýrði meðal annars sýningunum Fíasól gefst aldrei upp og Emil í Kattholti.