Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
„Það eru allir slegnir yfir þessu og segja má að við séum í sorgarferli. Það átti enginn von á þessari niðurstöðu,“ segir Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, í samtali við Morgunblaðið. Hann hefur starfað í 28 ár hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þung stemning er meðal starfsfólks embættisins eftir skyndilegt og óvænt brotthvarf Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum, sem kom starfsfólkinu í opna skjöldu, en yfir 230 manns starfa hjá embættinu.
„Það skynjaði enginn hér að eitthvað svona gæti legið í loftinu. Það hefur verið almenn ánægja með hann og hans störf hér innanhúss og hans sýn á verkefnin. Hér var maður í brúnni sem talaði íslensku og tók á þeim málum sem þurfti að laga,“ segir Jón Halldór og nefnir þar sérstaklega vörslu á landamærunum þegar kemur að smygli á fíkniefnum, eftirlit með því hverjir koma til landsins sem og farþegalistum flugfélaga. Úlfar hafi einnig verið ötull í að berjast fyrir bættum húsakosti lögreglunnar og tekið málefni Grindavíkur föstum tökum.
„Það er fáránlegt að dómsmálaráðherra skuli skýla sér á bak við einhverjar pólitískar áherslur í málinu og að lögreglan og hennar skipulag skuli sæta pólitískum afskiptum. Sú stofnun í landinu sem á að vera undanþegin því er réttarvörslukerfið; dómstólar, saksóknarar og lögreglan,“ segir hann og segir að engin teikn hafi verið á lofti varðandi þær breytingar á embættinu sem ráðherrann boðaði.
Hann bendir á að sé ætlunin að ráðast í breytingar á embættinu hefði verið heppilegra að hafa reyndan mann í brúnni.
Jón Halldór telur einnig að afleiðingarnar af meðferð ráðherrans á Úlfari kunni að vera þær að aðrir lögreglustjórar í landinu muni ekki fást til að tjá sig opinberlega um það sem betur megi fara, af ótta við að það falli ráðherranum ekki í geð.
Starfslokasamningur var gerður við Úlfar sl. þriðjudag sem dómsmálaráðuneytið afhenti Morgunblaðinu.