Endurkoma Hörður Björgvin Magnússon er einn reyndasti varnarmaður Íslands í dag og er nýstiginn upp úr erfiðum og langvinnum meiðslum.
Endurkoma Hörður Björgvin Magnússon er einn reyndasti varnarmaður Íslands í dag og er nýstiginn upp úr erfiðum og langvinnum meiðslum. — Morgunblaðið/Eggert
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, teflir fram lítið breyttum hópi þegar Ísland mætir Skotlandi og Norður-Írlandi í vináttulandsleikjum í Glasgow og Belfast 6. og 10. júní

Landsliðið

Víðir Sigurðsson

Jóhann Ingi Hafþórsson

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, teflir fram lítið breyttum hópi þegar Ísland mætir Skotlandi og Norður-Írlandi í vináttulandsleikjum í Glasgow og Belfast 6. og 10. júní.

Hörður Björgvin Magnússon kemur inn í hópinn eftir tæplega tveggja ára fjarveru vegna meiðsla en hann lék um síðustu helgi fyrsta leik sinn með Panathinaikos síðan í september 2023.

„Hörður er að sjálfsögðu ekki í neinu leikformi og ég á ekki von á að hann spili mikið í þessum leikjum. Ég vildi hins vegar hafa hann í hópnum til að hann væri með á liðsfundunum og kæmist hraðar inn í hlutina hjá okkur,“ sagði Arnar á fréttamannafundinum í gær.

Daníel Leó Grétarsson og Mikael Anderson, sem leika með Sönderjyske og AGF í Danmörku, koma aftur inn í hópinn en þeir misstu af leikjunum gegn Kósovó í mars vegna meiðsla. Sama er að segja um Arnór Sigurðsson, leikmann Malmö í Svíþjóð.

Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, kemur inn í hópinn í stað Lúkasar Peterssonar. Anton lék tvo vináttulandsleiki 2018 og 2019.

„Anton hefur byrjað tímabilið mjög vel með Breiðabliki og ég vil að leikmenn sem skara fram úr í Bestu deildinni eigi möguleika á að komast í landsliðið. Hvað Lúkas varðar er betra að hann geti einbeitt sér að því að spila með 21-árs landsliðinu,“ sagði Arnar um markverðina.

Nýi landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson, leikmaður Real Sociedad, verður ekki með vegna meiðsla og Hákon Arnar Haraldsson tekur við fyrirliðastöðunni af honum.

Hákon verður fyrirliði

„Hákon er ekki einn af þeim háværustu í hópnum en hann leiðir liðið áfram á vellinum með sinni spilamennsku,“ sagði Arnar um fyrirliðann unga.

Júlíus Magnússon frá Elfsborg, sem er meiddur, og Valgeir Lunddal Friðriksson frá Düsseldorf eru heldur ekki í hópnum.

Jóhann Berg Guðmundsson, sem lék ekki gegn Kósovó vegna meiðsla en var í hópnum, getur orðið sá fimmti frá upphafi til að spila 100 landsleiki en hann er kominn með 99 leiki fyrir Íslands hönd.

Markverðir:

Hákon Rafn Valdimarss., Brentford

Elías Rafn Ólafsson, Midtjylland

Anton Ari Einarsson, Breiðabliki

Varnarmenn:

Aron Einar Gunnarsson, Al Gharafa

Sverrir Ingi Ingason, Panathinaikos

Hörður B. Magnúss., Panathinaikos

Guðl. Victor Pálsson, Plymouth

Daníel Leó Grétarsson, Sönderjyske

Logi Tómasson, Strömsgodset

Bjarki Steinn Bjarkason, Venezia

Miðjumenn:

Jóhann Berg Guðmunds., Al Orobah

Arnór Ingvi Traustas., Norrköping

Mikael Anderson, AGF

Ísak B. Jóhannesson, Düsseldorf

Stefán Teitur Þórðarson, Preston

Hákon Arnar Haraldsson, Lille

Mikael Egill Ellertsson, Venezia

Þórir Jóhann Helgason, Lecce

Kristian Nökkvi Hlynsson, Sparta

Sóknarmenn:

Jón Dagur Þorsteinsson, Hertha B.

Albert Guðmundsson, Fiorentina

Arnór Sigurðsson, Malmö

Andri Lucas Guðjohnsen, Gent

Willum Þór Willumss., Birmingham

Höf.: Víðir Sigurðsson