Fríkirkjan í Hafnarfirði.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Aðalsteinn Þorvaldsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar í kapellu Akureyrarkirkju kl

AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Aðalsteinn Þorvaldsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar í kapellu Akureyrarkirkju kl. 12, að messu lokinni.

ÁSKIRKJA | Messa kl. 13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Hressing eftir messu.

BOÐUNARKIRKJAN | Laugardaginn 17. maí kl. 11 mun Jóhann Grétarsson flytja okkur orð Drottins. Gústav reiðir fram súpu og meðlæti að lokinni samkomu. Efninu verður streymt á https://facebook.com/Bodunarkirkjan

BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11, eitt barn verður fermt í messunni. Sr. Jón Ómar þjónar og Örn Magnússon er organisti.

BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Edda Austmann mezzósópran og Antonía Hevesi píanóleikari sjá um tónlistarflutning og söng. Sr. Sigríður Kristín leiðir stundina.

DIGRANESKIRKJA | Vorhátíð – fjölskyldustund kl. 11. Barnakórar frá Álfhólsskóla, Smáraskóla og Digranes- og Hjallakirkju syngja. Krakkar úr barnastarfinu leika dæmisögu. Hoppukastalar, pylsur og kaka eftir stundina.

DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn Valgeirsson, Pétur Nói Stefánsson og Dómkórinn. Alla þriðjudaga er kyrrðarstund kl. 12 og Bach-tónleikar kl. 20.

FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 13. Prestur er Pétur Ragnhildarson. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Barnakór Hólabrekkuskóla syngur og leiðir tónlistina undir stjórn Diljár Sigursveinsdóttur.

FRIÐRIKSKAPELLA | Lesin guðsþjónusta JELK.is í Friðrikskapellu kl 11. Sighvatur Gíslason les helgisiði og prédikun. Kaffi að guðsþjónustu lokinni.

FRÍKIRKJAN REYKJAVÍK | Guðsþjónusta kl. 14. Hjörtur Magni safnaðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Fermingarungmenni og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.

GARÐAKIRKJA | Messa á vegum Kvennakirkjunnar kl. 20.

GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Við komum saman, heyrum orðið og syngjum. Ásta Haraldsdóttir leiðir söfnuðinn í söng ásamt Kirkjukór Grensáskirkju. Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari.

GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIMILI | Guðsþjónusta klukkan 14. Prestur er Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur. Félagar úr Grundarkórunum leiða söng undir stjórn Kristínar Waage organista.

GUÐRÍÐARKIRKJA Í GRAFARHOLTI | Messa kl. 11. Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar fyrir altari og predikar. Arnhildur Valgarðsdóttir er organisti og kór Guðríðarkirkju syngur. Lovísa Guðmundsdóttir er kirkjuvörður.

HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar. Kammerkórinn Huldur syngur undir stjórn Hreiðars Inga. Organisti Matthías Harðarson. Ragnheiður Bjarnadóttir, María Elísabet Halldórsdóttir og Rósa Hrönn Árnadóttir sjá um barnastarfið.
Tónleikar kl. 17. Arvo Pärt, Poulenc og Finnur Karlsson. Kór Hallgrímskirkju, Kammersveit Reykjavíkur, Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran, Una Sveinbjarnardóttir konsertmeistari, Björn Steinar organisti, Steinar Logi Helgason stjórnandi. Aðgangseyrir 5.500 kr.
Aðalsafnaðarfundur 19. maí kl. 17 í suðursal Hallgrímskirkju.

HÁTEIGSKIRKJA | Messa og skírn kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju, syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

HJALLAKIRKJA KÓPAVOGI | Messa kl. 20. Dómkórinn í Reykjavík syngur, Kristján Hrannar Pálsson er organisti og sr. Alfreð Örn þjónar. Kaffi og spjall eftir messu.

HJÚKRUNARHEIMILIÐ SKJÓL | Guðsþjónusta kl. 14.15. Séra Sigurður Jónsson þjónar. Almennur söngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Vandamenn heimilismanna velkomnir með sínu fólki.

HVALSNESKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Almennur söngur við gítarslátt. Barn borið til skírnar.

HVÍTASUNNUKIRKJAN FÍLADELFÍA | Kl. 11. Samkoma. Service. Translation into English. Kl. 14. Samkoma á ensku. English speaking service. Kl. 16. Samkoma á spænsku. Reuniónes en español.

ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN | Almenn samkoma með lifandi prédikun, lofgjörð og fyrirbænum kl. 13. Ágúst V. Ólafsson prédikar. Lofgjörð verður í umsjón Keith Reed og fjölskyldu. Kaffi og samvera eftir stundina.

KEFLAVÍKURKIRKJA | Kl. 11 er vorhátíð sunnudagaskólans og KFUM-K Suðurnes. Regnbogaraddir syngja. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar ásamt Grybos, Helgu, Jóni Inga og Rut leiðtogum sunnudagaskólans. Góðir gestir úr Latabæ, grillaðar pylsur, andlitsmálning og hoppukastalar. Kl. 17 er batamessa, vorhátíð vina í bata. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Ívari djákna. Alexander Grybos er með tónlist. Jónína og Páll eru messuþjónar. Veitingar að athöfn lokinni.

KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Esterar Ólafsdóttur organista.

KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta verður í Garðakirkju á Álftanesi klukkan 20. Séra Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og leiðir sálmasöng. Á eftir verður messukaffi í Króki.

LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.00. Sr. Sunna Dóra Möller messar. Félagar úr Kór Langholtskirkju sjá um sönginn undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista.

LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er Sigurður Jónsson og organisti Kári Allansson. Karlakórinn Esja syngur. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Emmu og Hrafnkels. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir messu.

LÁGAFELLSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 13. Sr. Henning Emil leiðir stundina. Barnakór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur.

LINDAKIRKJA Í KÓPAVOGI | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju leiðir lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar.

NESKIRKJA | Vorhátíð barnastarfsins hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 sem leiðtogar í barnastarfinu ásamt sr. Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur leiða. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Stúlknakór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms og Tinnu Sigurðardóttur. Hoppukastali, andlitsmálning, grill og gleði.

SELJAKIRKJA | Prjónamessa kl. 11. Sr. Steinunn Anna prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna organista. Að messu lokinni verður veitingasala og rennur allur ágóði í styrktarsjóð Seljakirkju, Hjálparhönd. Þá verða verslanirnar Natura Knitting, Garnbúð Eddu og Today I feel yarn með varning til sölu í safnaðarsal. Handavinnan er velkomin með á kirkjubekkina.

SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. „Ný handbók Þjóðkirkjunnar“. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir prófessor talar. Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson héraðsprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Ólöf Ingólfsdóttir er forsöngvari. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn.
Á miðvikudag er morgunkaffi kl. 9-11 og kyrrðarstund kl. 11. Léttur málsverður á eftir.

SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sérstakir gestir eru „séra“ Gunnar Einarsson útvarpsprédikari og Reynir Pétur Ingvarsson þjóðargersemi, báðir til heimilis að Sólheimum í Grímsnesi. Þeir prédika með sr. Kristínu Þórunni og Jón Bjarnason dómorganisti leikur og leiðir söng. Eins og alltaf á þessum degi er forspilið sigurlag Júróvisjónkeppninnar. Kaffisamfélag á eftir.

VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Arna Grétarsdóttir predikar, þjónar fyrir altari og fermir barn. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Messukaffi í safnaðarheimilinu að lokinni athöfn.
25 ára afmælistónleikar Garðakórsins 17. maí kl. 17. Með kórnum leika Sólveig Anna Jónsdóttir á píanó og Jón Rafnsson á kontrabassa. Stjórnandi er Jóhann Baldvinsson.

VÍÐISTAÐAKIRKJA Í HAFNARFIRÐI | Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar og Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kaffihressing í safnaðarsal að messu lokinni.

YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 17. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar og kór kirkjunnar syngur undir stjórn Rafns Hlíðkvist.