Yfirburðir Leikmenn Breiðabliks fagna öðru marki leiksins, sem Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði, gegn Valskonum á Kópavogsvelli í gærkvöldi.
Yfirburðir Leikmenn Breiðabliks fagna öðru marki leiksins, sem Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði, gegn Valskonum á Kópavogsvelli í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Karítas
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Breiðablik vann afar sannfærandi 4:0-heimasigur á Val í stórleik 6. umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta í gær. Agla María Albertsdóttir kom Breiðabliki yfir eftir rúmar 50 sekúndur og var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi eftir það

Besta deildin

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Breiðablik vann afar sannfærandi 4:0-heimasigur á Val í stórleik 6. umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta í gær.

Agla María Albertsdóttir kom Breiðabliki yfir eftir rúmar 50 sekúndur og var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi eftir það.

Þegar upp var staðið var Berglind Björg Þorvaldsdóttir búin að skora tvö mörk og Karítas Tómasdóttir eitt í ójöfnum leik liðanna sem spiluðu hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn síðasta haust.

Úrslitin koma ekki endilega á óvart. Breiðablik er búið að raða inn mörkum og vinna hvern stórsigurinn á fætur öðrum á heimavelli sínum á meðan Valur var búinn að tapa tveimur deildarleikjum í röð fyrir leikinn í gær og aðeins vinna tvo leiki af fimm.

Breiðablik er að miklu leyti með sama lið og varð meistari á síðustu leiktíð og var haldið vel á spilunum í Kópavogi. Valsliðið er hins vegar nokkru lakara. Liðið saknar Katie Cousins á miðjunni og það var ekki góð hugmynd hjá forráðamönnum Vals að rifta samningi Berglindar Bjargar.

Valsliðinu gengur illa að skora og hinum megin fékk liðið á sig fjölmörg færi og var undir á miðjunni. Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson byrja afleitlega með Valsliðið og það má spyrja sig hvers vegna félagið losaði sig við Pétur Pétursson.

Furðulegar ákvarðanir á bak við tjöldin hafa veikt Valsliðið töluvert á milli tímabila.

Höf.: Jóhann Ingi Hafþórsson