Jóna G. Kolbrúnardóttir
Jóna G. Kolbrúnardóttir
Verkið „Sköpun“ eftir Finn Karlsson er nýtt og metnaðarfullt tónverk sem Hallgrímskirkja pantaði sérstaklega til flutnings á tónleikum vorið 2025 en það verður frumflutt á morgun, sunnudaginn 18. maí, klukkan 17, að því er segir í tilkynningu

Verkið „Sköpun“ eftir Finn Karlsson er nýtt og metnaðarfullt tónverk sem Hallgrímskirkja pantaði sérstaklega til flutnings á tónleikum vorið 2025 en það verður frumflutt á morgun, sunnudaginn 18. maí, klukkan 17, að því er segir í tilkynningu. „Verkið markar tímamót í nýsköpun íslenskrar kirkjutónlistar og endurspeglar þá listsköpun sem getur átt sér stað í samtali milli hefðar og nútímans. Það er samið fyrir blandaðan kór, sópransöngkonu, orgel, strengjasveit og slagverk og skiptist í tólf kafla.“

Einnig verða á dagskrá verk eftir Arvo Pärt og Francis Poulenc en flytjendur eru Kór Hallgrímskirkju, Kammersveit Reykjavíkur, Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran, Una Sveinbjarnardóttir konsertmeistari og Björn Steinar Sólbergsson sem spilar á orgel. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason.