Elza van den Heever
Elza van den Heever
Óperan Salome eftir Richard Strauss verður sýnd frá Metropolitan í Kringlubíói í dag, laugardaginn 17. maí, og hefst útsendingin klukkan 17. Segir í tilkynningu um viðburðinn að um sé að ræða nýja sviðsetningu en óperan var frumsýnd 29

Óperan Salome eftir Richard Strauss verður sýnd frá Metropolitan í Kringlubíói í dag, laugardaginn 17. maí, og hefst útsendingin klukkan 17.

Segir í tilkynningu um viðburðinn að um sé að ræða nýja sviðsetningu en óperan var frumsýnd 29. apríl. Ekkert hlé verður á sýningunni, sem lýkur um kl. 19.15. ­Kynnir verður Aigul Akhmetshina og hljómsveitarstjóri Yannick Nézet-Séguin en með hlutverk Salome fer Elza van den Heever.