Strandgata Í nýbyggingunni fyrir miðri mynd og fjær til vinstri, í húsi sem er klætt gult og svart, eru meðal annars hótelíbúðirnar.
Strandgata Í nýbyggingunni fyrir miðri mynd og fjær til vinstri, í húsi sem er klætt gult og svart, eru meðal annars hótelíbúðirnar. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Við erum þess fullviss að uppbygging þessi verður góð viðbót við mannlífsflóruna í hjarta Hafnarfjarðar. Hafi smitandi áhrif og stuðli að auknu lífi og virkni á svæðinu. Markmiðið er að skapa líflegan og aðlaðandi miðbæ sem dregur fólk…

„Við erum þess fullviss að uppbygging þessi verður góð viðbót við mannlífsflóruna í hjarta Hafnarfjarðar. Hafi smitandi áhrif og stuðli að auknu lífi og virkni á svæðinu. Markmiðið er að skapa líflegan og aðlaðandi miðbæ sem dregur fólk að,“ segir Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri 220 Fjarðar.

Framkvæmdir við Strandgötu 26-30 eru langt komnar. Nýbyggingin er fjögurra hæða að hluta en nær allt að sjö hæðum á íbúðarhlutanum, þar sem stallað form og ýmis stílbrigði í arkitektúr fá að njóta sín. Heildarstærð nýbyggingar er 8.700 m2 og er hún tengd verslunarmiðstöðinni Firði.

Í húsinu verður 31 lúxusíbúð og fara þær í sölu á næstu vikum. Þar verða einnig 18 hótelíbúðir.

Verslunarrýmið hefur að mestu verið leigt út og mun fjölbreytt starfsemi hefjast þar í haust. „Öll verslun verður á fyrstu hæð hússins, þar með taldar rótgrónar verslanir. Þá munu bætast í flóruna fyrirtæki sem eru þekkt nöfn. Hvað varðar svo hótelíbúðirnar þá verður 220 Fjörður með reksturinn á þeim og stefnum við á að opna í júní,“ segir Guðrún María Guðmundsdóttir markaðsstjóri.

Á annarri hæð hússins við Strandgötuna fær Bókasafn Hafnarfjarðar 1.700 fermetra aðstöðu. Flutningur bókasafnsins, sem er fyrirhugaður nærri næstu áramótum, markar nýtt upphaf fyrir starfsemina og til stendur að brydda upp á ýmsum menningartengdum nýjungum í starfinu þar. sbs@mbl.is